Ármann - 01.02.1961, Síða 13
GUÐMUNDUR ARASON:
HNEFALEIKAR
Það hefur verið heldur hljótt um hnefaleika
að undanförnu, ekki að ástæðulausu. Nú hef-
ur ritstjóri þessa blaðs mælzt til þess við mig,
að ég skrifaði um hnefaleika í blaðið.
Mér þykir fara vel á því, að hér verði rifj-
aður upp, að nokkru, hinn ágæti þáttur Ár-
menninga í hinni allt of stuttu sögu hnefa-
leika hér á landi.
Hjá Ármanni hófst kennsla í hnefaleikum
haustið 1926. Kennari var Peter Wigelund, nú
verkstjóri hjá Slippfélaginu í Reykjavík.
Hann, ásamt þremur nemendum hans, þeim
Sveini G. Sveinssyni, Lárusi Jónssyni og Ó-
lafi Pálssyni, sýndu hnefaleika í Iðnó 28.
september 1926 og var það fyrsta opinbera
hnefaleikasýningin hér á landi.
22. apríl 1928 héldu Ármenningar fyrsta
hnefaleikamótið, sem haldið var hér. Kepp-
endur voru 12 allir úr Ármanni og fór keppn-
in fram í Gamla Bíó. Hringdómari var Jó-
hannes Jósefsson og utanhringdómarar þeir
Eiríkur Beck og Reidar Sörensen. Keppend-
ur: Karl Jónsson, Guðmundur Sigurðsson,
Þórður Jónsson, Jón Kristjánsson, Þorvaldur
Guðmundsson, Guðjón Mýrdal, Guðmundur
Bjarnleifsson, Ólafur Pálsson, Sveinn Sveins-
son, Pétur Thomsen, Óskar Þórðarson og
Ólafur Ólafsson.
Árið eftir var æft af kappi hjá félaginu og
var annað hnefaleikamót haldið í Gamla Bíó
14. apríl 1929.
Eftir 1930 lögðust hnefaleikar niður um
tíma hjá félaginu, vegna þess að Peter Wige-
lund fluttist til Keflavíkur og hóf þar smíði
fiskibáta. Þá var enginn til þess að taka við
kennslunni af honum. Þótt æfingar hættu um
nokkra ára bil, þá höfðu keppnirnar og
hnefaleikasýnigarnar orsakað áhuga hjá ýms-
um fyrir því, að l.S.Í. tæki hnefaleika á
stefnuskrá sína. Einn þeirra áhugasömu var
Gudtnundur Arason.
Kjartan Þorvarðarson, síðar forstjóri Sund-
hallarinnar, er bar fram um það tillögu, sem
var samþykkt á þingi l.S.I. árið 1933. Ári síð-
ar voru þýddar, af Kjartani, hnefaleikareglur
alþjóðasambandsins og þær gefnar út af I.S.I.
1934. Með tilkomu þeirra hófust að nýju æf-
ingar hjá Ármanni í hnefaleikum um haustið
1935. Aðalkennari var Rögnvald Kjellevold,
norskur klæðskeri, er starfaði hjá klæðaverzl-
un Álafoss. Hann var vel þekktur hnefaleik-
ari í Noregi á þeim tíma. Æfingar voru
haldnar í íþróttasal Menntaskólans.
Þegar ég hóf að læra hnefaleik um haustið
1935 var margt nemenda og áhugi mikill. Vel
var séð fyrir kennslunni, því auk aðalkennar-
ans voru þcir Guðjón Mýrdal og Sveinn
Sveinsson aðstoðarkennarar. Okkur byrjend-
unum veittu þeir beztu kennsluna. Þeir byrj-
uðu á byrjuninni og fóru vel í smáatriðin, er
ávallt skipta miklu máli. Kennslu-aðferð
Kjellevolds var frekar sú,að taka nemandann
ÁRMANN
II