Ármann - 01.02.1961, Qupperneq 18
þróttir og þó sérstaklega glímu. Þorgrímur
var alhliða glímumaður og hinn fjölhæfasti
bæði í sókn og vörn. Helztu brögð hans munu
hafa verið klofbragð, sniðglíma á lofti og
krækja.
Þorgrímur tók oft þátt í bændaglímu og
sýningarglímu, sem Ármann gekkst fyrir.
Einnig kenndi hann skólapiltum latínuskól-
ans að glíma og glímu kenndi hann hjá
Glímufélaginu Ármanni fyrir og um alda-
mótin og var áhugasamur félagsmaður í því
félagi.
Auk búskaparins í Laugarnesi hafði Þor-
grímur margs konar iðnað að atvinnu.
Þorgrímur Jónsson var fæddur 28. febrúar
1873, sonur Jóns bónda í Skipholti í Hruna-
mannahreppi Ingimundarsonar frá Efstadal í
Laugardal og konu hans, Þorbjargar Jóns-
dóttur bónda í Skipholti Grímssonar stúdents
í Skipholti, Jónssonar í Skipholti, bróður
Fjalla-Eyvindar.
Hallgrimur Benediktsson, glimukappi
Ég minnist Hallgríms Benediktssonar sem
einhvers mesta glæsimennis og prúðmennis,
sem ég hef komizt í kynni við. Frá bernsku er
mér í fersku minni sá ljómi, sem lagði af
nafni hans, þessa íþróttakappa, sem margan
unglinginn langaði til að líkjast að atgervi og
drengskap.
Um Haligrím hefur það verið sagt, að
snemma hafi borið á honum sem glímumanni,
og fór orðstír hans vaxandi ár frá ári. Vakti
hann ekki sízt eftirtekt vegna þess, hve öll
framkoma hans var prúðmannleg og glæsi-
leg, enda vann hann brátt hylli ekki síður
viðfangsmanna sinna en áhorfenda eftir að
hann fór að koma opinberlega fram sem
glímumaður, en það gerði hann þar til 1912,
en þá stóð hann á tindi frægðar sinnar.
En frægastur mun Hallgrímur hafa orðið
eftir Þingvallaglímuna 1907, þar sem hann
sigraði. Þessi fræga glíma fór fram í viður-
vist konungsins, Friðriks áttunda, ríkisþings-
16
Hallgrimur Bene-
diktsson 190J.
Myndin er tekin
eftir konungsglím-
una.
manna og hins mesta fjölmennis víðsvegar að
af landinu.
Vafalaust hefur engin glíma hér á landi
verið sótt með jafnmiklum ,,spenningi“ eins
og þessi glíma. Var það ekki sízt vegna um-
mæla þáverandi glímukóngs Islands, Jóhann-
esar Jósefssonar, er hafði strengt þess heit að
halda þar velli, hverjum sem væri að mæta
ella lítilmenni heita. Þótti sumum þau um-
mæli nokkuð digurbarkaleg, en héldu þó, að
hann myndi geta staðið við þau, þar sem
hann hafði fáum mánuðum áður unnið fræg-
an sigur í Islandsglímunni á Akureyri. En
cftir var þó að vita, hvað Sunnlendingar
mundu duga, því þeir voru nú með í leikn-
um. Þessir glímdu: Jóhannes Jósefsson, Hall-
grímur Benediktsson, Guðmundur A. Stefáns-
ÁRMANN