Ármann - 01.02.1961, Síða 19
son, Sigurjón Pétursson, Snorri Einarsson,
Guðmundur Sigurjónsson (Hofdal), Árni
Helgason og Guðbrandur Magnússon. Var
eftirvæntingin og umtalið um glímuna afar
mikið og menn biðu með óþreyju þeirrar
stundar, er glíma átti. Og menn urðu ekki
fyrir vonbrigðum. Glíman öll var hin
skemmtilegasta og margt óvænt og snjallt
kom þar fram. Þegar þeir Hallgrímur og Jó-
hannes glímdu varð hljótt meðal áhorfenda.
Stóð það þó ekki lengi, því von bráðar vatt
Hallgrímur sér undir Jóhannes og náði á
honum ágætu hægra fótar klofbragði, sem
hann breytti síðan í hælkrók á lofti, hægri á
hægri. Féll nú Jóhannes fyrir Hallgrími, og
dundu þá við glymjandi fagnaðaróp.
1 þessari frægu glímu fékk Hallgrímur
Benediktsson i. verðlaun, Guðmundur A.
Stefánsson 2. verðlaun og Jóhannes Jósefsson
3. verðlaun.
Hallgrímur var einn af sjö þátttakendum í
Ólympíuförinni til London 1908. 1 Lundún-
um sýndu þeir íslenzka glímu daginn áður en
Ólympíuleikarnir hófust. Þann dag var hátíð
mikil á leikvanginum, og fóru þar fram margs
konar íþróttir. Islenzka glíman vakti þar hina
mestu eftirtekt meðal íþróttamanna og áhorf-
enda.
Mcðan á Ólympíuleikunum stóð, urðu
glímumennirnir að halda kyrru fyrir í Lund-
únum, því síðasta leikdaginn áttu þeir að
sýna glímuna aftur. Stjórnandi leikhússins
„Olympía" fékk þá til þess að sýna glímu í
leikhúsinu, og tóku þeir því boði með á-
nægju. Glímdu þeir svo í leikhúsi þessu á
hverju kvöldi í heila viku og buðu áhorfend-
um til leiks. Urðu ýmsir til að reyna sig og
skora á þá í glímu, en enginn gat staðið þeim
snúning, og þótti mörgum nafnkunnum
glímukappa súrt í broti að verða að detta á
svipstundu og skilja ekkert í þeim brögðum,
sem beitt var. Hef ég það fyrir satt, að Hall-
grímur hafi oftlega - þegar óárennilegt
þótti að mæta cinhverjum beljakanum - ver-
ið sendur fram á sviðið, og hafi hann þá ætíð
sigrað.
Árið 1912 fóru glímumenn á Ólympíuleik-
Hallgrímur Benediktsson
1908. Myndin er tekin
eftir fyrstu skfaldarglímu
Ármanns.
ana í Stokkhólmi. Glímt var á „Stadion“, og
sigurvegari varð Hallgrímur Benediktsson.
Vann hann Ólympíubikarinn, sem Islending-
ar búscttir í Danmörku höfðu gefið til að
keppa um á Ólympíuleikum til verðlauna
bezta glímumanninum í íslenzkri glímu.
f fyrstu Skjaldarglímu Ármanns sigraði
Hallgrímur Benediktsson. Glíma þessi var
háð 1. apríl 1908, og voru þátttakendur 12 og
lagði Hallgrímur þá alla, en þeirra á meðal
voru Sigurjón Pétursson, Guðmundur A.
Stefánsson og Jónatan Þorsteinsson.
1 Skjaldarglímu Ármanns 1909 sigraði
Hallgrímur einnig, en óhætt mun vera að
telja þessa Skjaldarglímu eina hina veiga-
mestu glímu, sem háð hefur verið í Reykja-
vík.
Armann
17