Ármann - 01.02.1961, Page 36

Ármann - 01.02.1961, Page 36
Séð frá uppruna sínum er judo listin að verja sig gegn ofbeldi. Judo, uppfundið og þróað í Japan, er alveg einstakt og óviðjafnanlegt, sem list í bardaga án vopna. Það er engin önnur sjálfsvarnarlist byggð á eins miklu hug- viti, kænsku og skarpskyggni. Ekki aðeins hvað snertir hina tæknilegu hlið, heldur hvað varðar hina andlegu hlið. Judo hefur verið rannsakað og þjálfað af djúpri hugsun, svo einstakt er í sinni röð. I Kodokan judo hafa mismunandi tækni- leg atriði frá eldri kerfum jujutsu verið próf- uð í nýju ljósi og lögð fyrir nútímann. í fyrsta lagi hefur verið komið á kerfi af judo tækni, sem er einkumlíkamsþjálfun og heilsu- rækt. Og að hinu leyti judo sem sjálfsvörn, sem krefst vitanlega einnig mjög mikillar þjálfunar. Judo sem íþrótt til líkamsþjálfunar, er í mörgu mjög frábrugðið hinum gömlu jujutsu aðferðum. Sem sjálfsvörn er judo einnig að undirstöðu og hugsjón mikið annað en hin gamla jujutsu. Til að gera judo að nútíma sjálfsvarnarlist hafa ýmsir góðir þættir jujustu verið lagðir fyrir nútíma fólk. Judo er grund- vallað í nútímanum og hefur verið þróað upp í að vera list, sem þroskar okkur andlega og líkamlega til að verða færari um að mæta mismunandi erfiðleikum lífsins. Sunddeild Fimleikadeild Aðalfundur var haldinn í nóv. s.l. Stjórnarkosning fór þannig: Formaður Siggcir Siggcirsson, varaformað- ur Einar Kristinsson, gjaldkeri Guðbrandur Guðjóns- son, ritari Sóion Sigurðsson og spjaldskrárritari Sig- urður Ingólfsson. Ernst Backman er þjálfari deildarinnar. Æfingataila: Mánud. Miðvikud. Sundknattleikur . 9,50 9,50 Þriðjud. Fimmtud. Föstud. Sund . 6,45 6,45 6,15 Æft er í Sundhöll Reykjavíkur. Stjórn dcildarinnar cr þannig skipuð: Sveinn Jóns- son formaður, Bent Bjarnason gjaldkeri, Sveinn Sig- urðsson ritari. Formaður skemmtinefndar er Jörgen Bcndtsen. Kennarar eru Vigfús Guðbrandsson og Halldóra Árnadóttir. Æ.linf>atafla: M Þ M F F 1. fl. karla 8,00 9,oc Drengjaflokkur 7,00 8,00 Telpnaflokkur 8,00 7,00 Frúaflokkur 9,00 9,00 Æft er í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar. 34 ÁRMANN

x

Ármann

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ármann
https://timarit.is/publication/692

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.