17. júní - 01.06.1924, Qupperneq 1
Valdimar Erlendsson, læknir í Frederikshavn.
MEÐAL peirra íslendinga, sem
ilendst hafa hjer í Danmörku og
unnið hafa sjer orðstír, er Valdimar
Erlendsson, læknir.
Hann hefur dvalið
hjer í 22 ár, og 12
síðustu árin læknir í
Friðrikshöfn, og nýt-
ur þar mikillar hylli.
— Á íslandi er
Valdimar Erlendsson
kunnur fyrir skrif sín.
Meðan dr. V. Q. átti
Eimreiðina, komu f>ar
oft fróðlegar og vel
skrifaðar greinar eftir
Vald. Erlendsson.
Af greinum hans þar
má nefna: Um sjúkra-
samlög, Um vín og
áfenga drykki, um
böð og bakstra og
um krabbamein. Hitt
ermönnnm ef til vill
ekki eins kunnugt,
að hann hefur síðustu 10—15 árin skrif-
að mikið í dönsk blöð, einkum á Jót-
landi, bæði um ísland og íslendinga og
annað. Dannig skrifaði hann langa og
fróðlega grein um Sambandslagafrum-
varpið 1918 (Island og Danmark), nokk-
ur minningarorð um Ólaf Björnsson,
ritstjóra (í Frederikshavns Folkeblad).
Þeirvoru skólabræð-
ur og vinir. Pá skrif-
aði hann Iíka um
Matthías Jochums-
son (í Lolands-Fal-
ster Venstreblad) pá
er hingað barst fregn-
in um andlát hans;
sú grein var prentuð
upp í fleirum dönsk-
um blöðum, bæði á
Jótlandi og Eyjunum.
Auk þessa hefir V.
E. skrifað ýmsar
greinar um íslend-
inga og íslensk mál,
t. d. Ársrit Fræða-
fjelagsins, Boga Th.
Melsteð o. fl. Alt er
þetta vel skrifað og
ber þess vott, að
V. E. þekkir vel mál
þau og menn, sem hann tekur sjer
fyrir hendur að skrifa um.
Ekki mega menn halda, að Valdi-
mar Erlendsson hafi læknastörfin í hjá-
verkum, þó að hann skrifi svo mikið