Morgunn - 01.12.1983, Síða 12
114
MORGUNN
Kannsóknir á framlialdslífi
Erla Tryggvadóttir sem einnig á sæti í stjórn Sálar-
rannsóknafélagsins sagði að það hefði komið sér á óvart
í umræðunum s.l. þriðjudag, hversu skoðanir væru skiptar
á spíritismanum og eðli hans. Hún sagði að það færi oft
svo að starfið í félaginu beindist mjög að öllu því sem
gerast þarf, en sjálfur grundvöllurinn gleymdist. Það gæfist
sjaldan tími til að ræða hvaða hugmyndir fólk hefði um
lífið. Það hefði því ekki verið vanþöi’f á að brydda upp
á umræðu, en í ljós kom að skoðanir voru margar og
ólíkar. Sjálf sagðist hún höll undir skilgreiningu Brother
John sem er vel þekktur innan fræðanna. Hann segir eitt-
hvað á þá leið að skipta beri sálarrannsóknum í tvennt,
annars vegar dulsálai’fræðina sem er stunduð með vísinda-
legum aöferðum, hins vegar er um að ræða lífsfílósófíu,
það hverju menn trúa um umhverfi sitt, dulræn fyrirbrigði
og annað líf.
Guðmundur Einarsson sagðist einnig hallast að þvi að
spíritisminn væri heimspekileg skoðun byggð á rannsókn-
um á framhaldslífi. Þar væri átt við skoðanir fólks á fram-
haldslífi og sambandi við annan heim og þá kenningu að
framhaldslíf hvers og eins tengdist því hvernig menn verja
lífi sínu á jörðinni. Þessar skoðanir eru óháðar trúarbrögð-
um og finnast nánast alls staðar meðal manna í einhverju
formi. Eða eins og Guðmundur sagði: „fyrir suma er spírit-
isminn eins og andlegt flotholt."
Erla Tryggvadóttir sagði að sér fyndist ritstjórinn taka
sterkt til orða þegar hann fullyrti að spíritisminn væri að
syngja sitt síðasta og ekki væri hægt að ná frekari árangri
með honum. Fóik liti á ritstjórarabbið eins og leiðara í
blaði og því hefði stjórnin ekki viljað senda ritið út án
þess að athuga og ræða máiið fyrst. Það væri hins vegar
sín skoðun að félagið ætti að ná yfir allt það sem tengist
sálarrannsóknum, félaginu væri ætlað að koma upplýs-
ingum á framfæri. Það væri fyrir leitandi fólk. Sumir teldu