Morgunn - 01.12.1983, Side 16
GUÐMUNDUR MÝRDAL:
EINANGRUN ÞÝÐIR STÖÐNUN
Ég sem starfandi miðill á vegum Sálarrannsóknafélags-
ins vil koma á framfæri minni persónulegu skoðun á þeirri
fullyrðingu Þórs Jakobssonar, ritstjóra Morguns, sem fram
kemur í grein um stöðu spíritismans í síðasta tölublaði
Helgarpóstsins, að alþýðleg andahyggja, öðru nafni spírit-
ismi, muni ekki bera frekari árangur. Ef þessi fullyrðing
er rétt, hvar standa þá persónuleg samskipti heimanna
tveggja? Frá bæjardyrum miðils eru slík samskipti í reynd
eins konar vináttusamband sem ekki er hægt að setja
undir smásjá vísindanna.
Ég er ekki á móti vísindalegum rannsóknum á spírit-
isma. Ef hins vegar vísindin væru aðgreind frá alþýðlegri
andahyggju yrði afleiðingin stöðnun fyrir báðar greinar.
Hvorug má við því að einangrast frá hinni. Miðillinn er
sjálfur mælitæki á eigin reynslu, en hann er síður en svo
andvígur því að sú reynsla sé rannsökuð á mælikvarða
vísindanna, eftir því sem mögulegt er.
Mér þykir því eðlilegt að innan Sálarrannsóknafélags
íslands starfi alþýðlegar rannsóknir og vísindalegar hlið
við hlið og á jafnréttisgrundvelli, en ekki að vísindamenn
kveði upp dauðadóm yfir persónulegri reynslu manna á
þessu sviði. Persónuleg sönnun að handan verkar eins og
vísindaleg sönnun fyrir sambandi tveggja heima. Þetta
sannaði enginn betur en Hafsteinn Björnsson.
(HP, 6.10. 1983).