Morgunn - 01.12.1983, Side 23
GEIR R. TÓMASSON:
HEFUR SPlRITISMINN RUNNIÐ
SKEIÐ SITT Á ENDA?
Þessi fyrirsögn á fundarboðinu er til komin vegna grein-
ar í 64. árg., sumarhefti Morguns 1983. Hún birtist undir
heitinu „ritstjórarabb“ eftir ritstj. dr. Þór Jakobsson veð-
urfræðing, en þar segir meðal annars: „Alþýðleg anda-
hyggja, öðru nafni spiritismi, mun ekki bera frekari árang-
ur. Hún hefur runnið sitt skeið á enda.“
Einnig hafa birst greinar um þetta efni í tveimur þlöð-
um borgarinnar, Tímanum og Helgarpóstinum.
Því fannst okkur í stjórn S.R.F.l. rétt að reifa þetta
mál nokkuð fyrir félagsmönnum hér í kvöld.
Frá öndverðu hafa sálarrannsóknir minnt á, að tilveran
byggi yfir miklu stórkostlegri leyndardómum en nokkra
renndi grun í og að þær gátur yrðu ekki eingöngu skýrðar
út frá sjónarmiðum efnishyggjunnar.
Fyrst langar mig til að víkja örlítið að orðinu spiritismi.
Það mun vera dregið af latneska orðinu ,,spiritus“, sem
m.a. getur þýtt andi, andvari og í yfirfærðri merkingu lífs-
andi; samanber 1. bók Móse: „og andi Guðs sveif yfir
vötnunum". Eða í sömu bók, þar sem talað er um að
„Guð hafi blásið lífsanda í nasir honum.“
Þannig tengist orðið strax trúarlegri merkingu og jafn-
framt hefur orðið fengið dulrænan blæ og síðar tengst