Morgunn - 01.12.1983, Qupperneq 31
DRAUMAR OG iJfsAMBÖND 133
stiginu, eins og þau voru, áður en vitað var, að allar sól-
stjörnur alheimsins eru af sömu frumefnum gerðar.
Hér bíður mannsandans meii’a og merkilegra viðfangs-
efni en nokkurt áður, og lausn þess mundi valda meiri
breytingum á högum mannkynsins, en orðið hafa á öllum
öldum áður. Raunhæf stjörnulíffræði, er sú vísindagrein,
sem heimurinn bíður eftir og sem heimurinn þarfnast.
Vísindaleg lífsambönd við íbúa annarra stjarna og iðkun
þeirra sambanda er það skref, sem enn er óstigið, en sem
er hið mesta nauðsyn á, ef vitkun og vísindi eiga að geta
þróast í jákvæða átt.
Svo vill til að undirstöðuuppgötvanir hafa verið gerðar
í þessari grein, stjörnulíffræðinni, og sá sem þær gerði var
Islendingurinn dr. Helgi Pjeturss, sem var viðurkenndur
jarðfræðingur og gerði í þeirri grein uppgötvanir, sem
orðið hafa undii’staða allra frekari rannsókna í íslenskri
jarðfræði. En síðari hluta starfsævi sinnar sneri hann sér
að vísindalegum rannsóknum á þeim fyrirbærum, sem jafn-
an hafa verið talin dulræn eða yfirskilvitleg. Komst hann
að þeirri niðurstöðu, að lokum, að öll slík fyrirbæri muni
skýra mega á náttúrufræðilegan hátt. öll séu þau af
náttúrlegum rótum runnin. Ekkert sé dulrænt, ef það er
rétt skilið. Dulrænt sé aðeins það, sem réttan skilning
vantar á. Það sé hlutverk vísindanna að rannsaka þessi
svið, og reyna að skilja þau.
Kenningar dr. Helga Pjeturss birtust í ritum þeim, sem
hann kallaði Nýala.
Það sem ég mun segja hér á eftir, er byggt á þeim skiln-
ingsgrunni, sem er að finna í ritum dr. Helga Pjeturss
en ýmislegt af því, sem síðari tima rannsóknir hafa leitt
í ijós, virðist færast æ nær þeim heimspekilegu og náttúru-
fræðilegu kenningum og rannsóknarniðurstöðum, sem hann
var upphafsmaður að.