Morgunn - 01.12.1983, Qupperneq 36
138
MORGUNN
gangast hana eða tala við hana og forðuðust að verða á
vegi hennar.
Um haustið gátu þau útvegað sér íbúð annarsstaðar og
fluttu þangað.
Drauminn mætti vel ráða fyrir því, að konan losnaði
úr sambýli við þetta fólk, á þann hátt, sem báðum aðilum
var fyrir bestu.
d. „Þar er kubburinn“
Faðir minn, Agnar Jónsson, var draumspakur maður
sem kallað er og draumar hans margir voru þess eðlis,
sem taldir eru táknrænir eða hefðu spásagnargildi.
Á meðan hann átti heima í Norðurfirði i Strandasýslu
réri hann oft til fiskjar á eigin báti og með honum menn
af næstu bæjum.
Eina nóttina dreymir hann, að maður kemur til hans
og sýnir honum ákveðin mið á sjó, sem faðir minn kannað-
ist vel við, en réri þó þangað fremur sjaldan. Honum
þykir maðurinn benda sér og segja: „Þar er kubburinn."
Draumurinn var ekki lengri.
Faðir minn var þess fullviss, að sér hefði verið sýnt,
hvert hann skyldi róa, og að orðið ,,kubburinn“ ætti við
afla.
Þennan morgun var gott veður. Faðir minn reri á þau
mið, sem honum hafði verið til vísað í draumnum. Lögðu
þeir þar lóðirnar. Er ekki að orðlengja, að þeir hlóðu bátinn
af góðum fiski. Þannig rættist draumurinn.
Faðir minn taldi, að oft hefði sér, í draumi, verið vísað
á hvert róa skyldi til fiskjar, og hefði það alltaf reynst
sér vel.
Þessir draumar eru allir táknrænir og sýnast hafa allt
að því ótvírætt spásagnargildi, því þeir virðast hafa komið
fram fyrr eða síðar eftir að hafa verið dreymdir, og eru
þannig samkvæmir hinum venjulegu draumaráðningum.
Ekki sé ég þó ástæðu til að ætla, að spásagnardraumar