Morgunn - 01.12.1983, Side 41
DRAUMAR OG UFSAMBÖND 143
og gerst með sama hætti. Björgunarmaðurinn hafði hér
gerst draumgjafi þess, sem drauminn dreymdi.
Fyrir kemur, að samband verður svo sterkt milli draum-
gjafa og draumþega, að áverki verði á líkama hins síðar-
nefnda, ef um slys hefur verið að ræða. Vil ég segja eina
sögu í því tilefni.
c. Meiðsli vegna sambands í draumi
Sunnudagsmorgun einn, ákváðum við hjónin, að fara
suður í Garð, og heimsækja Unu Guðmundsdóttur, sem
kunn var fyrir huglækningar, skyggni og annan næmleika,
sem öllum er ekki gefinn. Við höfðum þekkt hana all-
lengi.
Þegar við vorum komin suður í Garðabæ urðum við
fyrir árekstri vegna hálku. Bíll, sem kom á móti okkur,
ók á okkar bíl þeim megin sem kona mín sat. Skemmdist
bíll okkar talsvert, og kona mín fékk þungt högg á höfuðið.
Varð af stór kúla, sem hélst í langan tíma, ásamt eymslum
og höfuðverk. Væri annars hægt um þetta fleira að segja,
því slys þetta hefði orðið miklu alvarlegra hefði hér ekki
orðið merkilegt kraftaverk, að okkar mati.
Mun ég samt sleppa að greina frá þvi að sinni, því til-
gangur frásagnar minnar hér er annar.
Viku. seinna hittum við Unu i Garði og sögðum henni
frá framangreindu atviki.
Sagði hún okkur þá frá því, að sunnudaginn næstan á
undan, hefði hún vaknað seint um morguninn með eymsli
í höfði og vei'k. Er hún þreifaði um þennan auma blett
fann hún, að þar var allstór kúla komin. Kona úr næsta
húsi kom inn til hennar skömmu siðar, og lét hún hana
þreifa um höfuð sér, og staðfesti konan, að hér var um
kúlu að ræða og marblett. Kvaðst Una hafa sagt:
„Þessi kúla tilheyrir ekki mér, heldur einhverjum öðr-
um.“
Þegar tíminn var borinn saman, kom einnig í ljós, að