Morgunn - 01.12.1983, Side 57
RITSTJÓRARABB
159
Sáralítið hefur borist til mín frá öðrum óbeðið þessi
þrjú ár sem ég hef haft ritið með höndum. Að vísu taka
menn vel í málaleitan mína, þegar ég spyr hvort þeir hafi
eitthvað í pokahorninu. En ekki er sopið kálið þótt i
ausuna sé komið. Ritstjórinn má ekki slaka á og sofa
á verðinum. Hann verður að fylgja eftir loforðum manna,
hringja og minna þá á. Annars gerist ekkert, því miður.
Jafnvel þetta er ærin vinna, en nauðsynleg til að tryggja
fjölbreytni ritsins. Þetta verður næsti ritstjóri að hafa
ríkt í huga og ætla sér.
Langt er síðan ég tilkynnti stjórn Sálarrannsóknafélags
Islands, að ég hyggðist iáta gott heita og hætta sökum
anna, enda er engin ástæða að sitja lengi í ritstjórastóli
frekar en gengur og gerist hjá fólki í stjórnum félaga.
Ég stakk í tæka tíð upp á ritstjóra, Guðlaugu Elísu Krist-
insdóttur, formanni Sálarrannsóknafélagsins i Hafnarfirði,
en að öðru leyti hefur framhaldið verið í höndum stjórnar
Sálarrannsóknafélags Islands í Reykjavík.
Þegar ég tók við ritstjórn fyrirvaralaust á sínum tíma,
sá ég ekki ástæðu til að gerbreyta ritinu, en undanfarið
hef ég haft á prjónunum aukna fjölbreytni í efni og útliti.
Því miður hefur lítt miðað með þau áform, en ég hvet
næsta ritstjóra að taka upp þráðinn. Að lokum kveð ég
lesendur með góðum óskum.
Leiðrétting
í síðasta hefti, sumarhefti 1983, G4. árgangi, féll niður
orð, orðið ekki, og snýst því merking setningar við. Setn-
ingin er í grein dr. Matthíasar Jónassonar: Heimildir „að
handan“; bls. 42, í textadæmi nr. 53 (Gömul festarmál),
Kamban II, 4. línu. Setningin skal hljóða svo: „Þú ert
ekki of góður til að segja nei.“
Áskrifendur eru beðnir að leiðrétta setninguna í eintaki
sínu. Höfundur er beðinn velvirðingar á mistökunum.