Morgunn - 01.06.1985, Blaðsíða 26
angengna lífs fyrir manninum í einni hendingu. Þetta atvik
hefur verið margsannað af fólki sem bjargað hefur verið
frá drukknun eða hefur verið vakið aftur til meðvitundar
eftir að hafa verið talið látið. Á andlátsstundinni losnar
silfurþráðurinn frá jarðneska líkamanum og maðurinn,
umvafinn hinum eterska tvífara, virðist fljóta um stund
ofan við jarðneska líkamann.
Eftir nokkurn tíma, sem er mismunandi en þó varanlega
nokkrar klukkustundir, losna fínni líkamarnir frá eterska
tvífaranum og hafa þar með kastað af sér öllum jarðnesk-
um fjötrum. Eterski tvífarinn ,,deyr“ þá einnig og leysist
hægt og rólega upp en maðurinn dvelur áfram í geðræna
líkamanum.
Maður sem lifað hefur spilltu lifi og gefið sig á vald
lægstu hvötum er sagður ganga í gegnum tímabil þjáninga
eftir að hafa skilið við jarðneska líkamann. Að sjálf-
sögðu eru það ekki kvalir eins og við þekkjum þær í sam-
bandi við jarðlíkamann en engu að síður geta þær verið
mjög magnþrungnar, vegna þess að maðurinn verður að
eiga við langanir sem hann getur ekki lengur fengið svalað.
Þessu má líkja við hreinsunareldinn, eða hreinsun þá sem
talin er eiga sér stað eftir dauðann og lýst er í sumum
trúarbragðakerfum. Augljóslega getur viðkomandi ein-
stakling fundist hann vera kominn til vítis, en þessar
aðstæður eru alls ekki i eðli sínu refsingar, heldur er hér
einungis um afieiðingar náttúrulögmáls að ræða, eða úr-
vinnsla orsaka sem settar voru á stað í efnisheiminum,
Einstaklingur með fágaðan smekk og sem hefur góða
stjórn á löngunum sínum verður ekki fyrir neinum þess-
um ýktu tilfinningalegu átökum vegna þess að jafnvel
þéttustu og grófustu hlutar geðlikama hans hafa ekki til að
bera neitt það efni sem svarar þessum tíðnissviðum.
Talað hefur verið um að hvert hinna sjö sammiðja
orkusviða sólkerfisins hafi sjö innbyrðis skiptingar og ef
marka má iýsingar dulskyggnra manna, þá er lif á hinum
hærri stigum geðræna sviðsins mjög svipað ánægjulegri
24
MORGUNN