Morgunn - 01.06.1985, Blaðsíða 21
sóknir þessara mála öldungis ólöglegt athæfi, þar sem
skýrum stöfum sé bannað í Móseslögmáli að leita frétta af
framliðnum. ,Ég mun því aðeins ræða um þau andmæli
gegn spíritismanum, sem þeir hafa borið fram, sem kynnt
hafa sér þessi mál og rannsakað þau að einhverju leyti.
Því er haldið fram, að lýsingar miðla á hinu framliðna
fólki séu oft óljósar og óákveðnar, stundum beinlínis rang-
ar í verulegum atriðum og að sumir miðlar hafi beinlínis
orðið sannir að svikum og blekkingum. Þetta er rétt svo
langt sem það nær. Og spíritistar hafa síður en svo nokkra
tilhneigingu til þess að draga fjöður yfir þessi atriði eða
gera lítið úr þeim. Þeir vita það vel, að allt fúsk í þessum
málum getur ekki orðið til annars en að spilla fyrir spíri-
tismanum, gera hann tortryggilegan í margra augum og
telja réttmætan árangur rannsóknanna. Hins vegar eru
þetta engin allsherjar rök gegn raunveruleika hinna sál-
rænu fyrirbæra yfirleitt. Og enginn sæmilega gætinn vís-
indamaður lætur sér til hugar koma, að öll miðlastarfsemi
sé einber svik og loddarabrögð. Það væri að fullyrða marg-
falt meira en forsendurnar gefa réttmætt tilefni til.
1 annan stað er því haldið fram, að ýmislegt, sem fram
hefur komið í rannsóknum á starfsemi undirvitundarinnar
°g ESP og Super-ESP fyrirbæra bendi til þess, að þar
megi finna skýringar á mörgum sálrænum fyrirbærum.
Miðill muni geta sótt efnið í þær persónur, sem hann lýsir,
í undirvitund annarra lifandi manna fyrir fjarhrif og skapað
þær að öðrum þræði úr þeim eftirvæntingum og hugsun-
um, sem fylla huga þeirra, sem miðilsfundina sitja hverju
sinni. Ekki skal því neitað, að eitthvað sé rétt í þessu, að
þvi er snertir einstök tilfelli. Hins vegar er árangurinn af
Þlraunum hinna ágætustu vísindamanna varðandi fjarhrif
°g undirvitund svo ófullkominn og þær tilraunir mistakast
svo oft og eru slikum erfiðleikum bundnar, að það verður
að teljast f jarri öllum sanni, að réttmætt sé að halda fram,
að f jarhrif ein og undirvitund manna geti verið neinn alls-
hei-jar skýring á dulrænum fyrirbærum í heild, enda mun
Morgunn
19