Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 11
S.R.F.H. 50 ára
Hann hafði þá um skeið, kannað störf miðla hérlendis
og hafði góð tengsl við óþekktan miðil, er sagði hon-
um m.a. margt um óorðna hluti og það gengið eftir.
A fundum Eiríks með miðlum höfðu þeir Harald-
ur Níelsson og Einar Kvaran komið á vettvang og
hvatt Eirík til að styðja þeirra málefni. Hann minnt-
ist og þess að þá er gefin var úl viðskiptaskrá fyrir
Hafnaríjörð í byrjun árs 1967, að sá, er að útgáfu
skrárinnar vann, lýsti undrun sinni yfir hversu mörg
félög væru í Hafnarfirði og sagði:
„Þið hafið hér öll félög nema sálarrannsóknafélag.“
Eiríkur svaraði þessu að bragði:
„Það verður stofnað innan tíðar.“
Nú var til hans leitað um þátttöku í slíkri félags-
stofnun.
Þá er Hulda hringdi til hans, i’annst honum að í
sumu, sem hér væri um skilaboð að handan að ræða,
sem ekki væri rétt að sniðganga. Hann spurði því
Huldu um forustumenn um þetta málefni og greindi
hún honum frá Guðmundi Einarssyni og þeim 4
Hafnfirðingum, sem reiðubúnir væru til starfa.
Að þessu heyrðu leit Eiríkur svo til, að hann þyrfti
ekki að óttast að lenda í formannssæti, því til þess
stóð ekki hugur hans, en í ljós kom síðar, að áþekkt
var hugarfar hjá fleirum til þessa sama starfs.
Eftir litla umhugsun gaf hann jáyrði og lofaði að
mæta á l'undi um þetta efni hjá Guðmundi Einarssyni
á tilteknum stað og tíma.
Á seinni hluta laugar- eða sunnudags, sennilega 8.
eða 9. apríl 1967, mættu svo Bergljót, Hulda, Oliver
og Eiríkur, Óskar gat ekki mætt vegna veikinda, á
heimili Guðmundar verkfræðings, að Gimli við
MORGUNN 9