Morgunn - 01.06.1997, Page 12
S.R.F.H. 30 ára
Álftanesveg og auk heimilisfólks var þar og staddur
Sveinn Ólafsson, kunnur maður úr Garðahreppi.
Veitingar voru fram bornar af mikilli rausn.
Hófst nú umræða um stofnun sálarrannsóknafé-
lags í Hafnarfirði. Samþykkt var að vinna að stofnun
slíks félags þar. Skyldi hið fyrsta fara fram könnun
um þátttöku og reyndist hún sæmileg, yrði efnt til
stofnfundar í maímánuði. Eiríki var falið að ganga frá
drögum að lögum og hafa mið af lögum Sálarrann-
sóknafélags íslands.
Þá var tekið að fjalla um væntanlega stjórn í félagi
þessu. Eiríkur stakk upp á að Oliver Steinn yrði for-
maður. En þá lagði Oliver til að Eiríkur tæki við þeim
starfa. Báðir lýstu yfir því, að þeir vildu ekki þessa
virðingu hljóta. Þótti þá vel á því fara að hringja til
Óskars Jónssonar og honum boðið formannssæti en
hann skoraðist eindregið undan því, sakir heilsu-
brests.
Þeir Oliver og Eiríkur lögðu nú hart að þeim Berg-
Ijótu og Huldu að önnur hvor þeirra tæki við for-
mannsstarfinu og buðu þeim stoð sína og styrk í hví-
vetna. En þær báðar neituðu algjörlega. Var þá sam-
komulag gert um það að annar hvor þeirra Olivers
eða Eiríks skyldu við því starfi taka og ættu þeir að
gera það upp sín á milli, hvor það yrði.
Eiríkur var dálítið uggandi um sinn hag í þessu
sambandi. Vissi að Oliver gat verið erfiður í taumi,
enda bæði hærri, yngri og vaskur vel. Hann gerði því
þann fyrirvara, að ef einhver hæfur maður kæmi í
leitirnar, væri þeim Oliver heimilt að gefa honum
kost á formannsstarfinu.
Eiríkur fær stundum hugboð sem ganga eftir.
10 MORGUNN