Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 17
S.R.F.H. 30 ára
um skipun bráðabirgðastjórnar, er starfa skyldi til
framhaldsstofnfundar, gengi frá lögum fyrir félagið
og annaðist stjórn þess þangað til.
Stungið var upp á þessum félagsmönnum að til-
lögu Eiríks og Olivers:
Hafsteini Björnssyni,
Soffíu Sigurðardóttur,
Huldu Helgadóttur,
Bergljótu Sveinsdóttur,
Óskari Jónssyni,
Eiríki Pálssyni og
Oliver Steini.
Þessi skipun nefndarinnar og verkefni, var ein-
róma samþykkt. Að þessu loknu ílutti Sveinn Víking-
ur fróðlegt og merkilegt erindi en hóf mál sitt á því
að lýsa ánægju sinni yfir stofnun félagsins og hinum
mikla áhuga, sem fólk hér hefði sýnt málefnum sálar-
rannsókna. Óskaði hann félaginu allra heilla og
blessunar og taldi fágætt að við stofnun svona félags
væru tveir mestu miðlar landsins meðal stofnfélaga.
Þar átti hann við Hafstein Björnsson og Margréti ).
Thorlacíus.
Hinn 29. maí sama ár, hélt bráðabirgðastjórnin
fund að Arnarhrauni 44, heimili Olivers Steins. Lög
fyrir félagið voru rædd og frá þeim gengið. Við það
hafði verið miðað, að félagið bæri nafnið Sálarrann-
sóknafélag Hafnarfjarðar, en eins og málum var hátt-
að þótti betur á því fara að heitið væri Sálarrann-
sóknaielagið í Hafnarfirði. Með því ættu utanbæjar-
menn kost á að gerast félagsmenn og vera í stjórn
þess. Hyggilegra þótti og að kosin stjórn skipti með
sér störfum en formaðurinn ekki kosinn sérstaklega á
MORGUNN 15