Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 19

Morgunn - 01.06.1997, Page 19
S.R.F.H. 30 ára Skipan hinnar fyrstu stjórnar félagsins var þannig: Hafsteinn Björnsson, formaður, Hulda Helgadóttir, ritari, Oliver Steinn, gjaldkeri, Eiríkur Pálsson varaformaður og Bergljót Sveinsdóttir, vararitari. I varastjórn: Soffía Sigurðardóttir og Oskar Jónsson. Endurskoðendur: María Ólafsdóttir og Þórður Þórðarson. Að þessari kosningu lokinni tók Hafsteinn Björns- son við stjórn fundarins. Hann þakkaði það traust, er honum hefði verið sýnt og kvaðst vona, að sú keðja, er hér hefði verið mynduð, yrði þess umkomin að vinna í kærleika að því að þerra tár og veita vonar- bjarma inn í sálir syrgjandi meðbræðra. Þá risu fundargestir úr sæturn og sungu sálminn: „Þín náðin drottinn nóg mér er,“ eftir Einar H. Kvaran. Þessu næst flutti jónas Þorbergsson, útvarpsstjóri, erindi. Formaður sleit að því loknu fundinum með þess- um orðum: „Okkur, sem hlut eigum að þessari félagsstofnun, langar til þess, að þetta félag verði ofurlítill gluggi, er eitthvað af morgungeislum góðra hugsjóna geti skin- ið í gegnum, og með þeim hætti komist inn í sem flest heimili þessa bæjar.“ Sunginn var að síðustu sálmurinn: „Lýs rnilda ljós í gegnum þennan geim,“ í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. MORGUNN 17

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.