Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 21
S.R.F.H. 30 ára
góða gesti. Fyrir kom að Bæjarbíó væri tekið á leigu
vegna skyggnilýsingafunda á vegum félagsins og nú
Hafnarborg.
Fundarsókn hefur yfirleitt verið mikil. Nokkur
fyrstu árin frábær, nánast stórkostleg. Fundarblær
góður, margir segja hugþekkan í besta lagi.
Meðan Hafsteinn var og hét, hélt hann skyggnilýs-
ingafundi, einn eða fleiri á ári, fyrir félagsmenn. Þá
var aðsókn einstök. Að mínum dómi fannst mér þessi
þáttur í miðilsstarfi Hafsteins ákaflega rismikill. Lýs-
ingar á því, sem fyrir innri augu hans bar, greindar á
litríku, sterku, meitluðu máli, glöggleikinn, ná-
kvæmnin, ættfærslan og framdregin sérkenni, allt
var þetta með eindæmum. Þeir miðlar erlendir, er ég
hef heyrt hafa uppi áþekkar lýsingar, komust ekki
með tærnar þar sem hann hafði hælana.
Hafsteinn hafði og miðilsfundi sérstaklega fyrir fé-
lagsmenn, sem voru mjög eftirsóttir. Þetta leiddi til
þess að fólk annars staðar frá á landinu, gekk í félag-
ið í Hafnarfirði. Brátt varð félagið mjög fjölmennt.
Mig minnir að íelagatalan væri eitt sinn komin nærri
2000 tölunni.
Útvarpið var okkur einkar hliðhollt í sambandi við
auglýsingar. Þær voru og talsverðar. Vöktu athygli.
Fundir og störf félagsins því umrædd og það í háveg-
um haft. Ekki er rangt að fullyrða að á fyrri stjórnarár-
um Hafsteins hafi svo virst, að félagið í Hafnarfirði
bæri höfuð og herðar yfir sams konar félög hérlendis.
Aðstaðan í Bókabúð Olivers Steins, þar sem fólk
gat látið innrita sig í félagið og greiða sín gjöld og að-
göngumiða, ef svo bar undir, var félaginu mikils virði
og mjög til hagræðis, halds og trausts.
MORGUNN 19