Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 23
S.K.F.H. 30 ára
mikill sjónarsviptir. Skjótt hafði sól brugðið sumri.
Skarð mikið orðið fyrir skildi.
Félagið var þá nýorðið 10 ára og fram var haldið
för. Reynt að halda í horfinu eftir bestu getu. Það hef-
ur og tekist vonurn framar.
Fundir hafa frá upphafi og allt til þessa dags, ver-
ið menningarlegar kvöldvökur. Þar hafa verið flutt
lengri eða skemmri ávörp, svo og erindi stórmerk,
um margvísleg efni og til þess fengnir hinir færustu
menn, fróðir og lærðir. Fyrirlesarar og ræðumenn
skipta mörgum tugum. Þar af prestar um 20 talsins.
Þá voru og upplestrar úr fræðiritum. Sögur lesnar og
kvæði. Svo og hljómleikar margs konar, ekki síst
söngur. Skyggnilýsingafundir margir, hlutskyggni
könnuð, o.fl., o.fl.
Um skeið vann huglæknirinn Einar Jónsson frá Ein-
arsstöðum, á vegum félagsins. Félagsmenn gátu til hans
leitað með vandkvæði sín. Hann kom til Hafnarfjarðar
einu sinni eða tvisvar á vetri. Hann var þá til húsa hjá
Soffíu Sigurðardóttur, Skúlaskeiði 2, sem hafði mestan
veg og vanda af dvöl hans hér. Henni til styrktar og
trausts voru þær Guðlaug Elísa Kristinsdóttir og Hólm-
fríður Finnbogadóttir. Þá voru og sérstakir fundir í
Langholtskirkju, þar sem Einar mætti, svo og Haf-
steinn Bjömsson, þar sem meðlimum í félaginu var
tryggður aðgangur. Þeir fundir vom fjölmennir.
Þetta jók fjölbreytni í starfi og Einars er minnst
með þökk og virðingu. Hann er og frá okkur farinn.
Um tíma var lítið um miðla. Nú hefur á þessu orð-
ið mikil breyting. Margir hafa komið til sögunnar
sem slíkir. Félagið hefur hagnýtt sér þetta rækilega og
fengið ýmsa til starfa og fræðslu, karla sem konur.
MORGUNN 21