Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 27
S.R.F.H. 30 ára
átti sæti í varastjórn eða meðstjórn frá 1967-1988,
eða samtals í 21 ár.
Félaginu þótti því vel á því fara, er hún lét af störf-
um í stjórninni, að votta henni virðingu og þökk fyr-
ir langa stjórnarsetu og þann mikla þátt í því að Haf-
steinn Björnsson tók að sér formennsku í félaginu,
með því að gera hana að fyrsta heiðursfélaga sálar-
rannsóknafélagsins, þann 14. apríl 1988.
Þann 12. desember 1991 var og Eiríkur Pálsson
gerður heiðursfélagi.
Núverandi stjórn félagsins skipa:
Símon Jón Jóhannsson, formaður,
Halla Gísladóttir, varaformaður,
Sigríður Björnsdóttir, ritarí,
Bjarni Linnet, gjaldkeri og
Lilja Oliversdóttir, spjaldskrárritari.
Meðstjórnendur:
Agnes Jóhannsdóttir og
Úlfur Ragnarsson.
Þetta er úrvalslið og lofar góðu um vöxt og viðgang
félagsins.
Nú eru um 30 ár liðin frá stofnun þessa félags.
Þegar til baka er litið er margs að minnast og mik-
ið að þakka, einstaklingum og hópnurn í heild, sem
haldið hefur trúan vörð um tilvist félagsins. Ótrúlega
margir eiga fyrir það lof skilið en ekki er hægt að
nafngreina þá hér og nú. Þó finnst mér ég verða að
minnast með nöfnum, tveggja sérstakra góðvina okkar,
búsettra utan Hal'nai'fjarðar. Er þá fyrr að nefna Guð-
mund Einarsson, verkfræðing, og lengi forseta Sálar-
MORGUNN 25