Morgunn - 01.06.1997, Síða 28
S.R.F.H. 30 ára
rannsóknafélags íslands, sem óumdeilanlega var hvata-
maðurinn að stofnun félagsins og lagði á sínum tíma
traustan giundvöll að tilveru þess. Hann hefur lengi
verið vakandi á verði um gagnmerkt málefni, sem
snerlir vegferðina hér, viðhorf til þessa lífs og hvað bíða
kann. Hann mætir og hér fúslega ef eftir er leitað.
Kunn er sagan um manninn, sem gekk eitt sinn út
að sá. En sáningin bar mismunandi árangur. Sum-
staðar engan en annarsstaðar góðan. Sú hvatning og
sú forusta, er Guðmundur Einarsson veitti við stofn-
un þessa félags og vinsemd hans í þess garð æ síðan,
má telja að fallið hafi í sæmilegan jarðveg og borið
viðhlítandi ávöxt. Við íélagsmenn hér, vottum þér af
því tilefni, þökk og virðingu. Heill þér og þínum, og
verði framtíðin ykkur farsæl og fagnaðarrík.
Þá er næst að minnast prestsins okkar, Sigurðar
Hauks Guðjónssonar, er á sínum tíma hljóp undir
bagga, okkur til heilla, þá er illa áraði og svalvindar
blésu úr norðri. Fór hann með hlutverk Hafsteins um
skeið og gegnir stöðugt kalli, þá til hans er leitað og
það er nokkuð oft. Sú góðvild og fusleiki færir okk-
ur heim sanninn um drengskaparmann af góðu og
trauslu bergi brotinn, enda meðal annars ættaður úr
Svarfaðardal.
Eitt sinn var sagt: „Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið
mun ég setja þig. Gakk inn til fagnaðar herra þíns.“
Þú, Sigurður, hefur mikið á þig lagt að halda í
höndina á þessu okkar 30 ára félagi. Fyrir það áttu
sannarlega lof og þökk skilda.
Hinn mikli og eilífi andi blessi þig og þína og varð-
veiti og láti þig nokkurs njóta fyrir okkar hönd og
ykkur Guðmund báða, við heimkomuna til hans.
26 MORGUNN