Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 29
S.R.F.H. 30 ára
Frá 15 ára afmælisfundi S.R.F.H. 12. maí, 1982.
Aí þeim 7 er fyrstu stjórn og varastjórn félagsins
skipuðu, eru nú 5 horfnir okkar sjónum. Þau Haf-
steinn, Hulda, Oliver, Óskar og Soffía. Aðeins tvö
eftir, þau Bergljót Sveinsdóttir, nú prestsfrú að Reyk-
hólum á Barðaströnd og Eiríkur Pálsson, sem hér er
mættur.
Þessara frá okkur förnu brautryðjenda, minnumst
við með þökk og söknuði. En sérstaklega minnumst
við nú, á þessum tímamótum, Hafsteins Björnssonar,
fyrsta fornianns þessa félags og hins mikla höfundar
að grósku þess, svo og hinna margháttuðu starfa í
ræðu og ritum, boðun og fræðslu og stórkostlegra
frásagna í dásvefni og á skyggnilýsingafundum.
Ásamt honum biðjum við Huldu, Oliveri, Óskari og
Soffíu, guðs blessunar á nýjum vegum, og væntan-
lega önnum köfnum í miklum verkefnum, öðrum til
heilla og þökkum samfylgdina hérna megin og fyrir
morgunn 27