Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 33
Draugar í ferðamannaiðnaði
frá CBS, bandarísku sjónvarpsstöðinni, hafi áhuga á
málinu,“ sagði Mr. Robertson.
Afturgöngur hræða hvorki hann né konu hans
Sue, en hún er þó orðin dálítið pirruð á þessum
hamagangi öllum saman.
Þegar Robertson greiddi nær 70 milljónir króna
fyrir þetta niðurnídda 19. aldar höfðingjasetur árið
1989, þá lylgdi sem sagt Heira með í kaupunum en
bara steinar og steypa.
Þegar gamall gangur var opnaður þá tóku andaver-
ur að birtast. Fyrstur var ljóshærður náungi, sem
gerði nokkra hótelgesti og starfsmenn bókstaflega
skíthrædda, en eftir að hann birtist þá hefur fólk tek-
ið að flykkjast til Dromquinna og ekki bara það,
„draugunum“ hefur fjölgað líka.
Önnur veran, sem birtist, var ung stúlka, og kem-
ur útlit hennar alveg saman við lýsingu á dóttur
byggjanda höfðingjasetursins, Sir Johns Columb, en
hún lést þegar hún var 10 eða 12 ára gömul.
Tveir gestanna segjast hafa séð hana vera að
gramsa í farangri þeirra eina nóttina. Hún leystist
upp þegar hún sá að þeir voru að horfa á hana.
Og þriðji „draugurinn" er náungi sem gengur um
grasflötina um miðjar nætur með bjöllu, sem hann
hringir í sífellu.
En til allrar hamingju fyrir þá gesti sem eru orðnir
þreyttir á sífelldum draugagangi um nætur, þá er sagt
að bjallan sé hljóðlaus, en auðvitað á það ekki við um
fólk með miðilshæfileika (þá miðla, sem geta heyrt í
andaverum og hringjandi bjöllum). □
morgunn 31