Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Side 35

Morgunn - 01.06.1997, Side 35
Vísindalegur grunnur spíritismans hafa hugsað málið ítarlega og rannsakað gegnum árin, eru sannfærðir um að alheimurinn sé í eðli sínu tíðnisveifla, að hann sé ein heild og að flutningurinn úr hinni siðfræðilegu verund í gegnum það, sem kall- að er dauði, sé líkt og að ganga í gegnum dyr og koma inn í svið af ólíkri tíðni. Af því leiðir að himna- ríki og helvíti eru ekki staðir, þau eru tilvist. Meðvitund, eða hugur, eins og sumir nefna hana, framkvæmir með hugsun, sem spíritistar hafa ástæðu til að ætla að sé sterkasta tíðni alheimsins og að allt sé skapað af henni. Það er athyglisvert að svo merkir vísindamenn eins og Jeans og Eddington, meðal margra annarra, létu að lokum í ljós þá skoðun sína að allt efni kæmi frá meðvitund. Eða eins og Jeans orðar það: „Alheimurinn lítur miklu frekar út eins og risastór hugsun en risavél.“ Engu að síður, viljinn til þess að vantreysta sér- hverri nýrri eða óhefðbundinni hugmynd er svo fast mótaður í hugum mikls meirihluta mannkyns, að það mun sjálfsagt líða langur tíini áður en slíkt hugtak, eins og Jeans setur l'ram, verður almennt viðurkennt. Neyddur til að taka það aftur Var það ekki reynsla Kópernikusar og síðar Gali- leós? Báðir voru hafðir að háði og spotti á sínum tíma. Meira að segja var Galileó bannfærður af kirkjunni og neyddur til að taka aftur stuðning sinn við þá kenningu Kópernikusar að sólin gengi ekki í kringum MORGUNN 33

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.