Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 36
Vísindalegur grunnur spíritismans
jörðina einu sinni á 24 stunda fresti, eða þá yfirleitt.
Fjöldinn vildi ekki viðurkenna það.
Höfðu þau ekki líka sönnunina fyrir augum sínum
og fullvissu ritara „heilagrar ritningar" um hið gagn-
stæða?
„Kraftaverkin“ í ritningunni er öll hægt að skýra á
skynsamlegan hátt með dulrænni reynslu, þ.m.t. lík-
amningu, lyftingu, beinum röddum og heilun. Þar
sem það á við, eins og í líkamningu, þá hefur Ijós-
myndatækni búin innrauðum geislum, staðfest þetta.
Sannleikurinn er til staðar fyrir þá, sem leita, en
það verður að bera sig eftir honum.
Ef Kólumbus hefði ákveðið að sitja um kyrrt, að-
gerðalaus á Spáni, þá hefði hann aldrei uppgötvað
Ameríku. Aðgerðarleysi hefur aldrei fóstrað uppgötv-
anir. Verum því framkvæmdasöm og setjum fram al-
varlegar spurningar og rannsóknir.
Guð hjálpar þeim, sem hjálpa sér sjálfir, og laun
heiðarlegrar tilraunar munu m.a. verða sú hugarró,
sem tekur fram öllum skilningi.
Hugarró á rætur sínar í innblæstri og hugljómun
og eins og einhver hefur lýst því:
„Guðlegt andartak, þegar yfir lífshrakinni sál, líkt
og eitt sinn yfir ólgandi óreglu, var sagt: „Verði
ljós.““ □
Þýð.: G.B.
34 MORGUNN