Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Side 45

Morgunn - 01.06.1997, Side 45
Sálarrannsóknahreyfingin... myndir að handan, á beinar segulbandsraddir að handan, á kraftaverkin sem gerast í hverju horni hjá lækningamiðlunum og heilurunum, að ónefndu því hvar og hugsanlega hvernig þessir handanheimar eru þar sem allir látnir ástvinir okkar og vandamenn dvelja nú í? - Ekki er sagt eitt einasta orð um öll þessi mál í öllu þessu 30 milljarða menntakerfi landsins. Eða hvar sem dæmi, er nokkursstaðar minnst á öll þessi mál í kirkjunni okkar? Er þetta ekki algerlega óásættanlegt fyrir sálarrannsóknahreyfinguna og meðlimi hennar sem og fyrir allt siðmenntað og hugs- andi fólk? jú, segi ég og margir fleiri. Hingað og ekki lengra! Nú segjum við fjöldanum öllum frá þessum leyndarmálum okkar, og því sem sérfræðingarnir hafa komist að niðurstöðu um varðandi öll þessi efni. Við bíðum ekki eftir að hinar nýju kynslóðir komi á hnjánum og bíði auðmjúkar í biðröðinni endalausu í stiganum í Garðastrætinu, heldur komum við til þess og segjum þeim frá því, vilji þær á annað borð vita eitthvað um þessi mál. Og það er auðvelt sé viljinn og áhuginn fyrir hendi hjá okkur. En er hann það? Spyr sá sem ekki veit í dag. En svarið við því á eftir að koma í ljós á næstu árum og áratugum. Hvað er þá til ráða og hvert skal þá stefna? Erfitt er að gefa tæmandi lyfseðil fyrir því hvernig slík bylting eigi að eiga sér stað. Því bylting hlýtur það að verða þótt eflaust hljóðlát og mannúðleg verði. Ég sé íyrir mér, sem fyrr sagði í framtíðinni, mun meiri rannsóknir á ólíkum þáttum allra þessara mála. Þar yrðu vísindamenn fengnir til starfa, þótt hreyf- ingin setti auðvitað sitt mark á fyrirkomulagið þar, MORGUNN 43

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.