Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 46
Sálarrannsóknahreyfingin...
sem og á verkefnavalið hjá þeim. Dæmi um hvernig
við gætum og ættum að styðja slíkt væri að láta t.d.
5 til 10% af öllum tekjum sálarrannsóknahreyfingar-
innar renna til n.k. „sálarrannsóknarsjóðs“ sem allir
vísindamenn heimsins á þessum nótum gætu sótt
reglulega um styrki úr til rannsókna á þessu sviði.
Það myndi fljótt segja til sín og skapa okkur sífellt
íleiri ný og ný vopn í baráttunni gegn ógnarþröngsýni
bæði vísindastóðsins og kirkjunnnar í málinu, þ.e.
aðeins ef slíkur brunnur nýrra niðurstaðna væri til
staðar.
í annan stað yrðum við líka að taka til í eigin bak-
garði. Við yrðum og verðum að miðla félögum okkar
sem og öllum nýjum kynslóðum sem fram koma,
miklu fleiri röksemdum í þessari baráttu en gert er í
dag. Miklu fleiri upplýsingum, miklu víðtækari, ítar-
legri, aðgengilegri, og síðast en ekki síst í áhugaverð-
ara formi en er í dag.
Hvernig gæti þjóðfélag orðið sem til hliðsjónar
hefði flestar meginniðurstöður spíritismans?
Ef við lofum nú í lokin ímyndunaraflinu að fljúga
svolítið um í raunveruleikanum, hvernig þjóðfélag
framtíðarinnar gæti orðið/yrði líklegst, tæki það á
annað borð fullt tillit til flestra meginniðurstaðna
spíritismans, þá myndi líklega m.a. eftirfarandi gerast
ef flestum yrðu þessar staðreyndir okkar ljósar:
1. Sorg yrði útrýmt. Enginn myndi syrgja annan
einstakling við lát hans. Allir vissu um handanheim-
ana, hvar hinir látnu væru og hvernig lífið þar væri.
Og alltaf væri hægt að komast á sterkan og góðan
miðilsfund og ná skýru og góðu sambandi við alla
sem hinum megin væru. Hugtakið útþurkaður/
44 MORGUNN