Morgunn - 01.06.1997, Page 49
Sálarrannsóknahreyfingin...
sónulega mál sem fáum eða engum kæmi við. Slíkt
yrði passað vel).
4. Gegn flestum sjúkdómum á jörðunni fyndust
bæði réttar forvarnir - og rétt Iyf þegar í óefni væri
komið einhverra hluta vegna í kjölfar allra handan-
heimaupplýsinganna um þessa málaílokka. Því myndi
tíðni veikinda okkar jarðarlífsveranna stanslaust
minnka, þar til á endanum að þau myndu líklegast
næstum því alveg hverfa. Læknar og vísindamenn
jarðarinnar kæmust í nánast ótæmandi gagnabrunn
að handan um lyf og annað sem gegn þessum vágest-
um kæmi, þegar þeir á annað borð kæmust í samband
við allan þann her vísindamanna og lækna hinum
megin sem við þessi mál vinna. Og ekki síst alla þá
þekkingu sem þeir hinum megin hafa aflað sér með
miklu betri aðstöðu til að sjá þessi mál en vísinda-
menn hér í heimi geta nokkum tíman komið sér upp.
5. Við kæmumst í ótæmandi upplýsingabrunn
framtíðarinnar og fortíðarinnar um nánast hvað sem
væri. Nánast útilokað er að gera sér grein fyrir öllum
þeim ofurbreytingum sem í garð gengju ef þessu sam-
bandi yrði raunverulega náð, hverri af annarri í kjöl-
far þessa. Og ef svo færi þá myndi þjóðfélag okkar
væntanlega breytast í slíkum grundvallaratriðum, og
það á nánast öllum sviðum sínum, að ekki einu sinni
slíkur ofurframtíðardraumóramaður og sá, sem þess-
ar línur ritar, getur gert sér slíkt í hugarlund. En þið
getið rétt ímyndað ykkur afleiðingar þess þegar allir
þessir (í orðsins fyllstu merkingu) ótæmandi gagna-
brunnar handanheimanna opnuðust á „handan-
heima-internetinu“ okkar, og það hvenær sem er sól-
arhringsins.
MORGUNN 47