Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 52

Morgunn - 01.06.1997, Page 52
Bæn indíánaþjóns ert skilinn af öllum þessum hjörtum sem hneigjast til þín. Þú, ó mikli andi, lögmál þín stjórna öllu í al- heimi, þú hefur verið og munt alltaf verða. Þú hefur sýnt þig þeim, sem geta séð með augum andans. Þú hefur kennt þeim kærleika þinna. Þú hefur sýnt þeirn vísdóm þinn. Þú hefur opinberað áform þín í sam- ræmi við skilning þeirra. Þú hefur verið öllum þeim, sem vildu leitast við að færa konungsríki þitt til jarð- arinnar, innblástur, þannig að þau hafa gengið fram af hugrekki, sem hefur skapast af andanum hið innra, til að þjóna þér með því að þjóna börnum þínum. Þú hefur sent okkur, sendiboða þína, til að upp- lífga og hugga, til að kenna og opinbera að þeir, sem vinna með okkur eru að færa nýtt ljós í efnisheiminn, nýja þekkingu, nýjan sannleika og vísdóm, sem mun gera sálir barna þinna frjálsar og gera þeim grein fyr- ir hversu tengdar þær eru þér. Við viljum biðja þess að kraftur anda þíns flæði í þessu musteri og að í gegnum það muni lýsa inn í heim efnisins geisladýrð sannleika þíns, sem lýsi upp myrkvaða staði heimsins og færi með sér frið, ham- ingju, þekkingu og visku. □ Þýð.: G.B. 50 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.