Morgunn - 01.06.1997, Síða 52
Bæn indíánaþjóns
ert skilinn af öllum þessum hjörtum sem hneigjast til
þín. Þú, ó mikli andi, lögmál þín stjórna öllu í al-
heimi, þú hefur verið og munt alltaf verða. Þú hefur
sýnt þig þeim, sem geta séð með augum andans. Þú
hefur kennt þeim kærleika þinna. Þú hefur sýnt þeirn
vísdóm þinn. Þú hefur opinberað áform þín í sam-
ræmi við skilning þeirra. Þú hefur verið öllum þeim,
sem vildu leitast við að færa konungsríki þitt til jarð-
arinnar, innblástur, þannig að þau hafa gengið fram
af hugrekki, sem hefur skapast af andanum hið innra,
til að þjóna þér með því að þjóna börnum þínum.
Þú hefur sent okkur, sendiboða þína, til að upp-
lífga og hugga, til að kenna og opinbera að þeir, sem
vinna með okkur eru að færa nýtt ljós í efnisheiminn,
nýja þekkingu, nýjan sannleika og vísdóm, sem mun
gera sálir barna þinna frjálsar og gera þeim grein fyr-
ir hversu tengdar þær eru þér.
Við viljum biðja þess að kraftur anda þíns flæði í
þessu musteri og að í gegnum það muni lýsa inn í
heim efnisins geisladýrð sannleika þíns, sem lýsi upp
myrkvaða staði heimsins og færi með sér frið, ham-
ingju, þekkingu og visku. □
Þýð.: G.B.
50 MORGUNN