Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Side 55

Morgunn - 01.06.1997, Side 55
Tíminn og ábyrgð þekkingarinnar Tími kynslóðanna rís og hnígur og það er nokkuð sem við getum gengið að sem vísu. Samt er það þannig að meginhluti hverrar kynslóðar virðist hugsa sem svo að hún hafi af nógum tíma að taka og best sé að njóta líðandi stundar og vera ekki sífellt að hugsa um einhver rök tilverunnar. Það geri aðeins skýjaglópar. Þeir, sem þannig hugsa, hafa rétt fyrir sér að einu leyti. Tíminn nær út yfir gröf og dauða og þess vegna má segja að af honum höfum við nóg. Eilífðinni ligg- ur ekkert á og hún reynir ekki að hafa áhrif á frjáls- an vilja okkar. Hennar vegna getum við leyft okkur að vera löt eða dugleg, hugrökk eða óttaslegin, fjand- samleg eða ástúðleg. En við megum ekki gleyma því að straumur tímans skapar okkur eklci einfaldlega þróun, hann ber okkur að tækifærum sem, ef við nýtum þau, skapa þróun. Og eitt af þeim tækifærum, sem hann hefur borið okkur að er fæðing okkar og lífsferill hér á jörð. Og það tækifæri er, eins og öll önnur, sem við fáum, við verðum að grípa það á meðan það gefst, ef við ætlum að nýta það okkur til þróunar og gagns. Og sérhvert tækifæri býðst aðeins einu sinni. Það er að segja, vera kann að við getum fengið annað tækifæri síðar hér á jörð ef okkur og almættinu finnst við ekki hafa nýtt það, sem við fengum, sem best, en það verður aldrei sama tækifærið. Það verður ekki sami tíminn eða tímaskeiðið, það verður ekki sama fólkið, umhverfið og lífshættirnir. Þess vegna er það okkur afar nauð- synlegt að mínu mati, að íhuga lífsferil okkar og ævi núna hér á jörðinni, sem tækifæri, sem okkur muni ekki gefast aftur í sömu mynd. Erum við að nýta það MORGUNN 53

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.