Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 57

Morgunn - 01.06.1997, Page 57
Tíminn og ábyrgð þekkingarinnar margara annarra þeirra líka, fyrr og síðar? Voru þess- ir menn ekki að skapa sér grimmileg örlög og karma með framferði sínu og innræti á tækifæristíma sínum hér á jörð? Er hugsanlegt að slíkir menn séu tiltölu- lega saklausir „ásteytingarsteinar“ fyrir annað fólk, „ásteytingarsteinar," sem komið er fyrir um tíma í jarðlífinu til þess að skapa ástand og aðstæður fyrir aðra „syndaseli,“ ef svo má að orði komast, sem komnir eru til þess að uppskera afleiðingar fyrri ill- virkja sinna? Var og er allt þetta saklausa fólk, sem við teljum, einhverjir illvirkjar úr fyrri lífum og sem með hremmingum sínum er að vinna úr karma fyrri gerða sinna? Öll hungruðu börnin í Afríku, allur al- menningur í Víetnam og Sarajevo? Þetta er gríðarlega erfið spurning fyrir jarðneskan huga og mann hryllir við svarinu, á hvorn veginn sem það er. Hvaðan kemur öll þessi grimmd? Hverjir sá þess- um fræjum illmennsku í móttækilegar sálir? Er það saknæmt að vera svo opinn og saklaus að neikvæð öfl geti haft áhrif á viðkomandi til illra verka? Tæplega. Ábyrgðin í því tilfelli hlýtur að mestu að vera þess, sem sáði. Samkvæmt þeirri tilgátu gætu verið til til- tölulega saklaus illmenni karmískt séð. Hér komum við að þeim punkti, sem Silfur-Birkir leggur áherslu á, að þekkingunni fylgir ábyrgð. Um leið og þú hefur öðlast þekkingu á lögmáli lífsins, þá getur þú ekki skotist undan ábyrgð gerða þinna. Her- maður, sem frernur illvirki í skjóli þess að hann sé einungis að framfylgja skipunum yfirboðara síns en veit innst inni að hann er að gera rangt, er þar með orðinn ábyrgur gerða sinna og mun uppskera kannísk- morgunn 55

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.