Morgunn - 01.06.1997, Qupperneq 77
C.W. Leadbeater:
Hugheimar
Hugheimar
2. hluti
Það liggur því að heita má í augum uppi, að hver
sá maður, sem vill sökkva sér um hríð niður í
hugsanir sínar í hugheimum, getur í raun og veru lií'-
að þar í heimi, sem hann sjáli'ur hefur skapað og á
hann ekki á hættu að nokkur geti orðið til þess að
trufla hann. Hann sér þar, auk þess, allar hugmyndir
sínar og jafnframt hverjar afleiðingar þær geta haf't,
jafnóðum og þær líða fram fyrir hann. En, ef honum
léki mjög hugur á að athuga þetta tilverustig, sem
hann væri staddur á, yrði hann að gæta þess vand-
lega, að halda huganum í stilli og láta hann ekki
halda áfram að móta ný og ný hugsanagervi úr hinu
áhrifanæma frumgervisefni hugheima, af því að þau
breyttu, að því er honum sýndist, öllu umhverfi hans
á sömu stundu.
Þess ber þó að gæta, að það er sitthvað að menn
haldi huganum í stilli eða að þeir geri sig alveg hugs-
unarlausa, eins og þeim mönnum er ráðlegt, er vilja
temja sér sérstakar Hatha-jóga aðferðir. Hatha-jóga
iðkendur kosta því umfram allt kapps um að halda
huganum aðgerðarlausum, svo að engin hugsun frá
manninum sjálfum verði þeim áhrifum til fyrirstöðu,
er að honum berast, og er slíkt ástand mjög áþekkt
dáleiðslu miðla. Hinsvegar hefur hver sá maður, sem
MORGUNN 75