Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 79

Morgunn - 01.06.1997, Page 79
Hugheimar hugheimum eru engin sérstök starfssvið, nema þau, er hver og einn býr sér til sjálfur með hugsunum sín- um, nema því aðeins, að við segðum, að allur hinn dýrðlegi verusægur, sem líður stöðugt fram fyrir hvern þann er dvelur í hugheimum, séu í raun og veru hlutir, er setji snið sitt á allt útlit hinna ýmsu svæða hugheima, svo það lætur ef til vill sýnu nær sanni að segja, að þar séu alls konar starfssvið og að þar geti menn litið hvers konar fegurð á hauðri, í lofti og legi í margfalt ríkari mæli en unnt er að sjá hér á jarðríki, og menn geta yfirleitt gert sér í hugarlund. En menn sjá það eitt af dýrð hugheima, sem þeirra eigin skynjanagáfa gerir þeim fært að sjá og hún fer eftir því, hve miklum þroska þeir hafa tekið á jarðríki og í geðheimum. Öldurnar miklu Við skulum gera ráð fyrir, að komumaður vildi at- huga hugheima nokkuð nánar og reyna að sjá hvern- ig þeir litu út í raun og veru, þegar hvorki hugsanir hans sjálfs né samræður íbúa hugheima yrðu til þess að trufla hann eða glepja fyrir honum. Þetta væri honum og vinnandi vegur, ef hann fengi gert um sig geysimikið hvolf, sem engin utanað komandi áhrif gætu borist gegnum. En hann yrði auðvitað að halda huganum í stilli og athuga umhverfi sitt, innanvert við hvolf þetta. Ef hann gerði tilraun þessa með nægilegri vand- virkni, mundi hann komast að raun um, að jafnvel þótt ljóshvolfið umhverfis hann sé ekki hreyfingar- laust, sökum þess, að hver efnisögn þess er sífellt í af- morgunn 77

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.