Morgunn


Morgunn - 01.06.1997, Page 80

Morgunn - 01.06.1997, Page 80
Hugheimar skaplegu sveifluástandi, þá er eins og það sé allt gert úr samkynja efni. Hin sífelldu ljósblik og síbreytilegu ljósgervi eru horfin. Hins vegar getur að líta allt aðr- ar og reglubundnar hreyfingar, er ekki var tekið eftir innan um hin sífelldu ljós-, lita- og blæbrigði, er áttu rót sína að rekja til hinna ýmsu vera. En þessar hreyf- ingar líða auðsjáanlega um alla hugheima, svo að engin hvolf eða hýði, sem menn geta einangrað sig í, fá stemmt stigur fyrir þeim, né sveigt þær í aðra átt. Hreyfingar þessar valda hvorki ljósgervum né lit- brigðum, en fara alltaf jafnt og þétt um allt efni hug- heima og er því að finna bæði hið ytra og innra í hlut- unum, sem inn- og útöndun einhvers mikils andar- dráttar, er við þekkjum ekki. Það eru til fleiri en ein slík hreyfing og það er unnt að þekkja þær hverja frá annarri, sökum þess að þær eru mismunandi öflugar og hafa mismunandi hraða, og það, sem við gætum kallað samræmisáhrif. En svo er líka til einn slíkur orkustraumur, sem er mestur þeirra allra og sýnist vera höfuðhreyfing þeirra, orku- straumur, er rís einhversstaðar upp frá óþekktum orkugjafa á miklu hærra tilverustigi og lætur lífs- magn sitt flæða gegnum alla veröldina. Alda þessi fellur svo aftur með stríðum straumi sömu leið og hún kom og alla leið til þeirrar uppsprettu, sem hún kom frá. Hún gerir því ýmist að flæða upp og niður og veldur nið, er helst líkist sjávarnið í fjarlægð. Gegnum þennan nið eða öllu heldur í honum kveða við þróttmiklir sigurómar, hinn eiginlegi samræmis- söngur hnattanna. Hver sá maður, sem hefur einu sinni heyrt þann dýrðarsöng náttúrunnar, hlýtur alltaf að heyra hann upp frá þeirri stundu. Hann 78 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.