Morgunn - 01.06.1997, Side 88
Hugheimar
við hann en ella og mótar þannig breiðari farveg fyr-
ir ennþá meiri hjálp og kraft frá æðri tilverustigum.
Það lítur því helst út fyrir að meistarinn sé svo hlað-
inn, ef svo má að orði kveða, því áhrifamagni, er
hjálpar og styrkir aðra, að hver kærleikshugsun til
hans verður til þess að efla vitundarsambandið við
hann og greiða fyrir áhrifastraumnum frá honum,
gera farveginn breiðari fyrir kvísl úr kærleiksmóðu
hans að streyma eftir.
Ahrif hugsananna koma töluvert öðruvísi í ljós á
hinum æðri svæðum hugheima, á arúpa-svæðunum,
eða í vitheimi, sem við köllum svo. Hræring sú, er
þær fá valdið þar í efnum hugheima, er að vísu lík, en
hún er samt miklum mun öflugri þar, sökum þess, að
þar er allt efni miklu smágerðara og kvikara fyrir.
Hinsvegar verður hugsunin ekki þar til þess að móta
neitt hugsanagervi úr frumgervisefninu. Ahrif hugs-
ananna verða því þar með allt öðrum hætti. Þegar
þessar tilraunir voru gerðar á hinum lægri svæðum
hugheima, sáust hugsanagervin vera á sveimi yfir
þeim mönnum, sem þeim var beint til og bíða eftir
því að þeim gæfist kostur á að láta áhrifamagn sitt
koma niður í huglíkama, geðlíkama eða jafnvel hin-
um jarðneska líkama þeirra. En þegar þessar hugs-
anatilranir fóru fram á hinum hærri svæðum, fór
hver hugsun þegar í stað beina leið frá orsakalíkama
þess manns, er hugsaði hana, og til orsakalíkama
hins, sem hugsað var um. Þar birtist hún sem blik-
andi leiftur. Þær hugsanir, sem hugsaðar eru á lægri
svæðunum, er beint að persónuleikanum, en hinar,
sem eru hugsaðar á hærri svæðunum, berast til hins
innra manns, sem endurfæðist hér á jarðríki, hvað
86 MORGUNN