Morgunn - 01.06.1997, Síða 92
Hugheimar
gervið, sem hann sendir þá frá sér, verður lifandi eft-
irmynd hans. Og ef reglulega dulskyggn maður væri
þar fyrir, er mjög líklegt að hann þættist sjá sjálfan
manninn birtast sér. Slík hugsanagervi geta stundum
veitt mönnum ákveðna vitneskju eða farið með sér-
stök skilaboð, sem eru þá fólgin í þeirri hugsun, er ól
þau af sér. Sveifluhreyfingar þeirra eða áhrifamagn,
nær fyrst geðlíkama þess manns, sem þau eru send til
og berast slíkar sveifluhreyfingar svo aftur til heila-
vitundarinnar, sem ákveðin hugsun, eða jafnvel sem
setning. Slík hugsanagervi geta einnig orðið til þess
að veita eiganda sínum vitneskju um áhrif þau, er
þau verða fyrir, sökum þess, að þau eru í eins konar
áhrifasambandi við hann.“
Þeir menn, er Ieikur hugur á að vita nokkuð ger
um þessa hluti, ættu helst að kynna sér alla ritgerð-
ina vel og vandlega. Þetta, sem hér er sagt, er aðeins
lítill útdráttur. Hinar prýðilega vel gerðu myndir, sem
fylgja ritgerðinni, veita mönnum miklu rækilegri
skilning á hugsanagervunum en nokkrar upplýsingar,
sem birtar hafa verið allt til þessa.
Svæðin
Ef við værum spurðir að því, hver væri munurinn
á hinum ýmsu svæðum hugheima, þá yrði því vissu-
lega ekki svo auðsvarað. Sannleikurinn er sá, að hver
sá maður, er ætlar sér að lýsa hugheimum, kemst
undir eins í orðaþrot, þegar hann fer að lýsa lægsta
svæði þeirra og hefur svo engin viðeigandi orð yfir
hin sex, sem eftir eru. Því að hvað getum við sagat
annað um hugheima, en að allt efni þeirra verður
smágerðara og kvikara fyrir öllum áhrifum eftir því
90 MORGUNN