Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Side 6

Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Side 6
78 Útvarpstíðindi Oísli Kristjánsson ritstjóri Freys. Búnaðarvika í útvarpinu Ilalldór Pálsson sauðfjárræktnrráðurmutur. Búnaðarfélag íslands annast búnaðar- vikuna, sem efnt verður til í útvarpinu, en Gísli Kristjánsson, ritstjóri, sér um fram- kvæmd hennar fyrir hönd félagsins, og hefur haft með höndum stjórn undirbún- ingsins. Búnaðarvikan verður nú með nokkuð öðrum hætti en tíðkazt hefur áð- ur, einkum er það nýbreytni, að þeir Gísli Kristjánsson og Halldór Pálsson, ráðunaut- ur, munu rabba við nokkra bændur um bú- skap og búnaðarháttu almennt. Bændurnir, sem taka þátt í þessum viðræðum verða þeir: Kristján Karlsson, skólastjóri á Hól- um, Baldur Baldvinsson á Ófeigsstöðum, Páll Pálsson á Þúfum, Þorsteinn Sigfússon, Sandbrekku, og Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu. Þá verður fjöldi erinda fluttur um land- búnaðarmál og heimilisstörf í sveitum. Svafa Þorleifsdóttir, fyrrv. skólastj., flyt- ur erindi um ullariðnað, Anna Gísladóttir talar um heimilishagfrœði, Guðrún Páls- dóttir á Hallormsstað flytur erindi, er hún nefnir: Horft til baka og fram á leið, enn- ennfremur munu þær Jónína frá Lækja- móti og Valborg Sigurðardóttir, skólastjóri, flytja erindi. Stefán Björnsson, mjólkurfræðingur, flytur erindi um breytingar á fitu-innihaldi mjólkur, og EÖvarð Sigurðsson, mjólkurfr., talar um mjaltir. Páll Pálsson, dýralæknir, um vettvang dýralœknisins. Páll Sveinsson, búfræðikandidat, flytur erindi, sem hann nefnir: Sandgrœðslan og þjóðin, og Ey- vindur Jónsson, búfræðikandidat, talar um: Niðurstöður búreikninga. Guðmundur Jónsson, skólastj. á Hvann- eyri, flytur erindi um starfssvíð verkfœra- Stefán Bjömsson, mjólkurbússtj., cand lact.

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.