Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Page 14

Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Page 14
86 Útvarpstíðindi Reykvíkingur einn kom að máli við Útvarps- tíðindi og óskaði þess eindregið, að þau birtu eftirfarandi áskorun í nafni nokkurra heimil- isvina, sem ekki eru nánar greindir. Hann lét þess um leið getið, að annað hvort vildi hann hafa gott útvarp eða þá alls ekk- ert útvarp: Við undirritaðir skorum á Útvarpsráð að út- varpssagan verði lesin tvisvar í viku, og flutt af góðum lesara, en í vetur hefur ekki verið lesin upp útvarpssagan nema einu sinni í viku og þykir okkur afarmörgum það mjög slæmt, þar sem fólk situr heima og vonast eftir þess- ari skemmtun. Annars er mestur áhugi við barnatíma og góðar og vel lesnar útvarpssögur. Þetta er staðreynd, þess vegna er þetta afar- leitt að ekki skuli ganga betur, en hefur gengið í vetur með útvarpssöguna. Með vinsemd og virðingu. Heimilisvinir. ★ Annar áhugasamur Reykvíkingur sendi þetta bréf, dags. 10. marz: Mig langar til að leggja orð í belg eins og og góður hlustandi. — Mig iangar til þess að Ríkisútvarpið leggi Jassþáttinn alveg niður, eins mætti leggja niður mússíkina úr Sjálf- stæðishúsinu og Hótel Borg. í þess stað mætti útvarpa hljómlist úr Alþýðuhúsinu,.Þórskaffi, Gúttó og Breiðfirðingabúð. Mjög væri gaman að Heljarslóðaorusta verði lesinn í útvarpið á laugardagskvöldin og kröftugar draugasögur. Ríkisútvarpið getur ekki heimtað 100 kr. árs- gjald af hlustendum, nema bjóða þeim upp á eitthvað kröftugra en hefur verið í útvarpinu undanfarið. Gömlu danslögin verði leikin á laugardagskvöldum og sagðar Huldufólkssögur. Nýju danslögin verði leikin á sunnudagskvöld- um. Reykjavík, 10. marz 1949. Einn áhugasamur. Hlustandi úti á landi skrifar: .... Mér finnst dagskrá útvarpsins að mörgu leyti þunn, og að hún beri þessi merki, að ekki sé lögð feiknamikil vinna, i að útbúa hana. Dagskráin virðist miðuð eingöngu við það, að Reykvíkingar fræði okkur í strjálbýlinu, og að reykvískir skemmtikraftar skemmti okkur. Reyndar er þetta svo sem ekki að öllu leyti vitlaust. Þó er það svo, að sambandið gegnum útvarpið verður einungis tvíþætt, samband milli Reykjavíkur annars vegar og annarra landshluta hins vegar, (fréttirnar undanskild- ar). Hægt ætti að vera, að útvarpið léti starfs- menn sína ferðast á milli héraðanna með upp- tökutæki og afla efnis, bæði til fræðslu og skemmtunar. Úti á landi er fjöldi manna, sem kunna góð skil á fróðlegum efnum og flytja gott mál. Hægt væri að gefa þeim nokkurn fyrirvara, svo að þeir gætu búið sig undir komu upptökumannsins. Eins er það, að víða, bæði í skóium og félögum, eru nægir skemmti- kraftar, til að geta flutt til dæmis 15—20 mínútna gamanleikrit alveg sæmilega, þá eru og víða góðar söngraddir. Ég er viss um að ungmennafélögin í sveitum iandsins, og einnig skólarnir, myndu leggja mikla áherslu á undir- búning, og skemmtileg samkeppni gæti skap- azt milli skóla og milli héraða um beztu út- varpsþættina. Ég hef heyrt að til dæmis Norð- menn hagi útvarpsstarfsemi sinni eitthvað á þessa leið, og ég er viss um að hér þarf ekkert annað en góðan vilja og framkvæmdasemi. Ó.... Þess skal getið, að blaðinu hefur borizt ann.- að bréf, sem er þessu svo líkt að efni, að ekki þykir ástæða til að birta það líka. ★ Ríkisútvarpið virðist furðulega sneytt allri virðingu fyrir óskum hlustenda sinna, og tíð- um virðast fjölskyldusjónarmið ráða efni dag- skrár. En á annan máta virðist eitthvert smá- smugulegt sparnaðarsjónarmið ráða gerðum dagskrárstjórnar og á ég þar við þann hátt, að stytta og skera niður ýmis dagskrárefni vegna þess, að Passíusálmalestur hefur verið tekinn upp á föstunni. Þessi niðurskurður kemur sér illa að sumu leyti, til dæmis er mér og fleirum mjög illa við, að Óskalagaþátturinn skuli vera

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.