Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Page 17
ÚtvarpstíSindi
89
sambandi við símamanninn og nú kemur
fyrsta samtalið. Það hringir í áhaldinu
framan við míkrofóninn, og maðurinn sem
þar er, hrópar: „Hættið að spila!“ Hljóm-
sveitin hættir og Bert Parks tekur upp
simaáhaldið. í því kemur drengur inn með
miða og á hann er skrifað nafn og heim-
ilisfang Mr. Browns.
Mr. Brown hefur þekkt lagiö Home,
Home on the Range, og fær radiogrammó-
fón í verðlaun. Og þá kemur spurning núm-.
er tvö: Þekkið þér þetta leyndardómsfulla
lag? Hljómsveitin leikur lag í hálfa mín-
útu. Það er dauöaþögn í salnum og dauða-
þögn í simanum. Allir vita, að til mikils er
að vinna, geysileg verðmæti í boði, allt að
30.000 dollarar. En nú fór illa, hvorki herra
né frú Brown þekktu lagið. — Sorry, sorry,
kallar Parks og herra Brown verður að gera
sig ánægðan með radiogrammófóninn.
Dagskráin heldur áfram. Hvert lag er
ekki leikið nema í tvær mínútur í mesta
lagi, flest þeirra kannast hlustendur viö
strax, en erfiðlega gengur með lagið leynd-
ardómsfulla. Það er haldið áfram með það
viku eftir viku, þar til einhver getur sagt,
hvaða lag þetta sé, og fær þá sá hinn sami
öll þessi óhemju auðæfi. Síðan er byrjað
með nýtt lag og ný verðlaun. Geti sá, sem
hringt er til, ekki sagt nafnið á fyrsta lag-
inu, sem leikiö er, fær einhver hinna 10
útvöldu frá áhorfendunum tækifærið, en
þeir hafa aldrei rétt til að gizka á lagið
leyndardómsfulla, því það er eingöngu
ætlað þeim milljónum hlustenda sem
fjarstaddir eru.
Þessi leyndardómsfullu lög hafa jöfnum
höndum verið valin úr klassiskri sem ný-
tízku tónlist. Hinir einu, sem frá upphafi
vita nafn lagsins, eru dagskrárstjórinn,
Bert Parks og Harry Salter. Sá, sem spurður
er um lagið, verður að gefa nákvæmt svar,
annars getur hann ekki gert sér vonir um
að eignast auðæfin.
Og hver leggur svo til verðlaunin? Þau
eru einfaldlega fengin með auglýsinga-
starfsemi. Fjöldi fyrirtækja gefur af fram-
leiðslu sinni til verðlaunanna, en nafn
hvers þeirra er nefnt í dagskrárþættinum,
og þykir sú auglýsing vel borga gjöfina.
Skrá yfir öll verðlaunin, sem John Oaks
vann fyrir að þekkja lagið „When the
bridegroom comes“, er þannig:
Rikisskuldabréf 1000 dollarar, armbands-
úr með gimsteinum 2500 dollarar, Jans-
sens-Regency-píanó 1000 dollarar, dem-
antshring í platínuumgjörð 3000 dollarar,
nýtízku húsgögn í dagstofu 2000 dollarar,
eldhússútbúnaður úr ryðfríu stáli 2000 doll-
arar, tvenna fatnaði fyrir sérhverja stúlku
á þeim barnaheimilum í USA, sem John
Oaks vildi benda á, perluhálsband með
ekta perlum og demantslás (borið af Jenni-
fer Jones í nýju kvikmyndinni „Myndin af
Jenny“) 1500 dollarar, minnkaslá 1800 doll.,
skápur með rúmfatnaði 1500 doll., fullkom-
in uppsetning af svefnpokum dr. Dentons
og barnagæzla tvö kvöld í viku í heilt ár
1200 doll., fullkominn silfurborðbúnaður
fyrir 12 manns 1200 doll., ferðaútbúnaður í
Amelia Earhart-stíl, dömufatnaður til að
vera í á dýrustu sumarhótelum 1000 doll.,
frí í Palm Springs, Kaliforniu ásamt öllum
kostnaði, fimmtíu dollara hatt handa
frúnni á hverjum mánuði ársins, fjórar
manchettskyrtur fyrir hvern mánuð ársins,
ilmvötn fyrir 100 dollara, fjórar nýjar
bækur á hverjum mánuði ársins frá Simon
& Schuster, fimmtán dollara konfektaskja
hvern mánuð, pakka með leikföngum og
spilum hvern mánuð, rafmagnstæki til
heimilisnotkunar, ryksuga, brauðrist o. fl.
hvern mánuð ársins, Kaiser Deluxe Sedan
— model 1949, og loks sverðið, sem eitt
sinn tilheyrði Wainwright hershöfðingj a,
hetjunni frá Bataan.