Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Qupperneq 18

Útvarpstíðindi - 21.03.1949, Qupperneq 18
90 Útvarpstíðindi BARNA- TÍMINN Um langan tíma heí'ur sá háttur verið' hafð'ur á, að sami maður hefur að mestu leyti annast sunnudagstíma barnanna svo misserum eða jafnvel árum skipti. Það hef- ur því þótt við brenna, er til lengdar lét, að tímarnir yrðu nokkuð fábreyttir. Að áliðnum þessum vetri var það nýmæli upp tekið, að skipta barnatímanum milli þriggja aðila og hafa þau Hildur Kalman, Sveinbjörn Jónsson og Þorsteinn Ö. Step- hensen nú urn sinn annast tímann til skiptist. Ætti þetta að geta orðið til bóta, þar sem það má heita ofætlun einum manni, sem auk þess venjulega er öðrum störfum hlaðinn, að geta á viku hverri kom- ið með nýstárlegt skemmtiefni við hæfi barna, sem eru að jafnaði mjög vandlátir hlustendur og leggja ekki eyrun að öðru en því, sem vekur áhuga þeirra. En barna- bókmenntir okkar eru fremur fábreyttar og flest af því bezta í þeim þaullesið af læsum börnum og erfitt að afla nokkurs erlendis frá eins og nú er komið innflutn- ingi bóka. Mun ég nú gera nokkra grein íyrir tveim síðustu barnatímum eins og þeir komu mér fyrir eyru. Þann 13. marz. Sveinbjörn Jónsson ann- ast tímann: Tíminn byrjaði nokkuð vel. Stálpaðar telpur sungu og léku á gítar og telpa las smásögu. Þetta var rösklega flutt og mjög áheyrilegt, sérstaklega flutningur sögunn- ar. Þessu næst var atriði, sem nefnt var skemmtiþáttur, en því miður algerlega mis- heppnaður sem slíkur. Þátturinn var aðal- lega samantíndir „billegir brandarar“ og miklu frekar við hæfi fullorðinna en barna ef nokkrum væri ætlandi að hafa skemmt- un af. Það má og teljast mjög hæpið að „fá að láni“ atriði eins og um manninn, sem sat á kettinum og þurrkaði sér með blekuga vasaklútnum, úr sögunni um íeimna unglinginn, sem hefur verið marg- lesin í barnatímanum. Það er ekki verið að heimta það að þessir þættir hafi list- gildi þótt óneitanlega væri skemmtilegra að þeir hefðu eitthvert gildi, en lágmarks- krafan er, að þeir séu flutningshæfir. — Að síðustu flutti Sveinbjörn þátt frá ír- landi, sem var nokkuð góður, en ef til vill fuli daufgerður til að halda athygli barn- anna vakandi allan tímann. Þann 23. marz. Þorsteinn Ö. Stephensen annast tímann. Tími þessi var i heild allgóður. Tvær telpur lásu sögur og var lestur þeirra góð- ur og annarrar með ágætum. Stefán Jóns- son, námsstjóri, er gamalkunnur í barna- tímanum. Hann hefur frá mörgu og oft skemmtilegu að segja. í þessum tíma sagði hann ferðasögu frá Svíþjóð. Þátturinn var helzt til langdreginn, en annars góöur. — Næsta atriði var bæði óvenjulegt og af- bragðs gott. Þrjú ung systkin léku saman á hljóöíæri. — Að síðustu las Þorsteinn þátt eftir Jóhann Hannesson, kristniboða. Jóhann hefur verið afar vinsæll útvarps- fyrirlesari bæði hjá börnum og fullorðnum. En við þennan þátt var það að athuga, að Jóhann samdi hann upphaflega fyrir barnatímann og flutti hann þar sjálfur ekki alls fyrir löngu. Auk þess var þáttur- inn birtur nýlega í barnabókinni Fann- eyju, svo hætt er við, að hann hafi verið orðinn börnunum of kunnur til þess að þau hefðu áhuga á honum. veb.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.