Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.09.1940, Side 20

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.09.1940, Side 20
32 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR XV. fl. Ljósmæður Byrjendur á skrifstofu. XVI. fl. Starfsstúlkur við Sundhöll. II. kafli. Launauppbætur og ívilnanir. 6. gr. Launin skv. 5. gr. eru full laun. Eng- ar ívilnanir eða launauppbætur umfram launagreiðslurnar, sem þar eru ákveðn- ar verða veittar, aðrar en þær, sem get- ur um í 7. gr., nema með sérstöku sam- þykki bæjarráðs eða eftir atvikum hafn- arstjórnar. Húsaleiga þeirra starfs- manna, sem hafa húsnæði hjá bænum í sambandi við störf sín, skal dregin frá laununum eftir mati til skatts. Ljós og hita skulu þessir starfsmenn greiða sjálfir eftir kostnaðarverði, en ef vand- kvæði eru á því, þá á sama hátt og húsnæðið, þ. e. eftir mati til skatts. 7. gr. Þeir sem bærinn leggur til fatnað vegna starfa þeirra, fá hann ókeypis eftir reglum, sem bæjarráð eða hafnar- stjórn setja, enda er yfirmönnum þeim, er í hlut eiga, skylt að gæta þess, að þeim reglum sé fylgt. Fullan og jafnan rétt til einkennisbúnings hafa: Lög- reglumenn, slökkviliðsmenn, hafnsögu- menn, vélamenn á hafnsögubát, vatns- menn við höfn og heilbrigðisfulltrúi. Varðstjórar lögreglunnar (3) fá fyrir störf sín aukaþóknun, kr. 50.00 á mán- uði. Bæjargjaldkeri og gjaldkerar Raf- magnsveitu og Hafnar fá árlega kr. 1000.00 í mistalningsfé hver. Bæjarráð setur reglur um greiðslu bifreiðakostn- aðar fyrir starfsmennina. r ' ' . —.........* Slailsinannablaö Rejkjavíkur. IJTGEFANDI: Starfsmannafélag Reykjavíkurbæjar. ð RITSTJÓRN: Lárus Sigurbjörnsson, aðstoðarm. bæjargjaldkera. Jóhann G. Möller, skrifstofustjóri Rafmv. Rvikur. Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi. Auglýsingar annast Auglýsingaskrifstofa E.K., Austurstræti 12. Sími 4292. Starfsmannablað Reykjavíkur kemur út 6 sinnum á ári og kostar utan Starfsmannafél. Reykjavíkurbæjar 5 kr. árg. (6 tölublöð). 1 lausasölu 1 kr. blaðið. STEINDÓRSPRENT H.F. - ' 8. gr. Bæjarráð eða hafnarstjórn setja regl- ur um starfstíma í hverri starfsgrein, og skal miða við sex daga vinnuviku. Enginn fastur starfsmaður hefir rétt til aukagreiðslu fyrir eftirvinnu, helgidaga- vinnu né næturvinnu. I þeim starfsgrein- um, þar sem slík vinna er óhjákvæmi- leg, greiðist hún ekki aukalega, né nein- ar uppbætur, enda fái þeir starfsmenn frí á öðrum tímum, sem aukavinnu svar- ar, og eftir þeim reglum, er þar um gilda eða settar kunna að verða. Allir fastir starfsmenn hafa rétt og skyldu til sumarleyfa, eftir reglum, sem gilda um þau á hverjum tíma. Starfsmenn fá ekki kaupgreiðslur í stað sumarleyfa. m. kafli. 9. gr. Samþykkt þessi öðlast gildi 1. apríl 1939.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.