Bankablaðið - 01.04.1936, Blaðsíða 2
2
BANKABLAÐIí)
unz styrkveiting fer fram að nýju.
Skal þannig aldrei meira en 3ja ára
styrkur til ráðstöfunar sjóðsstjórnar í
einu auk hins reglulega styrks.
Þann hluta vaxtanna, sem ekki er
varið til styrkveitinga, svo og aðrar
tekjur sjóðsins, skal ávallt leggja við
höfuðstól hans.
6. gr.
Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðn-
um eru:
a) Að umsækjandi hafi verið að
minnsta kosti þrjú ár fastur starfs-
maður í Landsbanka íslands.
b) Ef um utanför er að ræða, þá ekki
yngri en 21 árs að aldri.
c) Teljist verðugur að dómi sjóðs-
stjórnar, og
d) Að umsækjandi skuldbindi sig til
að starfa í þjónustu bankans, að
minnsta kosti tvö ár, að loknu
námi, eða endurgreiða styrkinn að
öðrum kosti.
Endurgreiðsla styrksins getur þó
fallið niður, séu sérstakar ástæður fyr-
ir hendi.
Stjórn sjóðsins skal, áður en hún á-
kveður styrkveitingu, fullvissa sig um,
að viðkomandi fái fjarvistarleyfi.
Þegar styrkur er veittur til utanfar-
ar, má greiða helming hans við brott-
för umsækjanda, en síðari helmingur
hans greiðist er sjóðsstjórninni hafa
borizt fullnægjandi skilríki fyrir því,
að umsækjandi stundi nám sitt af
áhuga, enda sé þá helmingur dvalar-
tímans liðinn.
Engum einum styrkþega má veita
hærri styrk en kr. 1500,00 — fimmtán
hundruð krónur — á sama ári.
Verði ágreiningur um veitingu
styrks, ræður afl atkvæða úrslitum.
Engum einum starfsmanni veitist
oftar styrkur til utanfara úr sjóðnum
en einu sinni á 10 árum.
7. gr.
Stjórn sjóðsins skal skipuð fimm
mönnum, og skal hún kosin á aðal-
fundi starfsmannafélags bankans ár
hvert. Þó skal fyrsta stjórn sjóðsins
kosin á almennum fundi starfsmanna-
félagsins, þegar eftir að skipulagsskrá
þessi hefir öðlazt staðfestingu hlutað-
eigenda. Stjórnin skiptir með sér verk-
um. Ennfremur skulu þá kosnir tveir
varamenn í stjórn sjóðsins og tveir
endurskoðendur. Fráfarandi sjóðs-
stjórn leggur þá og fram til samþykkt-
ar endurskoðaða reikninga sjóðsins.
8. gr.
Skipulagsskrá sjóðsins má breyta,
ef fram kemur um það eindregin ósk
meiri hluta félaga í viðurkenndu
starfsmannafélagi bankans, og stjórn
bankans samþykkir.
-----o----
Stjórn sjóðsins er enn ókosin, en
,,BANKABLAÐIГ mun sjálfsagt
birta tilkynningu að kosningu lokinni.
Nokkrar tillögur, er mörgum þóttu
til bóta, náðu ekki framgangi, eins og
t. d. sú, að styrkþega bæri skylda til
að halda fyrirlestur eða skila ritgerð
að loknu námi. Þeir, sem voru með-
mæltir þessari tillögu, héldu því fram,
að þar sem svo margir af núverandi
starfsmönnum kæmu tæpast til greina
við styrkveitingar, þá væri það þó hið
minnsta, er þeir gætu átt kröfu til, að
fá einhverjar upplýsingar frá þeim, er
réttindanna yrðu aðnjótandi.
Það er að vísu galli, að frumvarpið
var ekki borið undir þá starfsmenn