Bankablaðið - 01.12.1938, Side 17
BANKABLAÐIÐ
89
að gefa þeim vissan tíma til þess að
setja sig inn í starf hverrar deildar.
Að þessum tíma liðnum á yfirboðar-
inn að gefa skýrslu til hærri staða um
starfshæfni, áhuga og afkastagetu ný-
liðans og eins á nýliðinn frá minnis-
blöðum sínum að gefa skýrslu um það,
sem fyrir augu hefir borið. Á þennan
hátt er mönnum í fyrsta lagi kennt að
vinna. I öðru lagi er þetta fljótasta og
öruggasta leiðin til þess að gefa ný-
liðanum heildaryfirlit, sem mikið velt-
ur á. I þriðja lagi skapar það áhuga
og um leið vinnugleði og í fjórða lagi
er forstöðumönnum bankans gefin lýs-
ing á hæfileikum undirmannsins og
þeir fá gögn í hendurnar, sem sýna
við hvaða starf þessir hæfileikar bezt
geta notið sín. Bankinn græðir á þessu,
sama er að segja um starfsfólkið.
Á þennan hátt er starfið vissulega
öruggur skóli, en hann nær ekki lengra
en að kenna eftirkomandanum starfs-
hætti fyrirrennarans. Þá tekur við
bóklegur skóli og hann á að gefa bank-
anum „nýtt blóð“. Hann á að örva til
umhugsunar, skerpa eftirtektina og
hvetja menn til að kanna nýjar leiðir.
Skólinn á að kenna mönnum byggingu
þjóðfélagsins. Hann á að skýra undir-
stöður viðskiptalífsins í heild og síðan
skilja sundur í einstakar greinar.Hver
viðskiptagrein hlýðir vissum lögmál-
um, lögmálin eru grundvöllur þeirra.
Síðan eru tekin til meðferðar einstök
fyrirtæki innan hverrar greinar. Af
ársreikningum á að kenna mönnum að
lesa verðmæti þeirra og framtíðar-
möguleika. Þá á að sýna sérstaklega
hlutverk bankans í lífi viðskiptanna
um leið og bent er á þau tæki, sem
hann kann að hafa yfir að ráða. Það
á að kenna skipulagningu banka og
bankapólitík. Þetta er það nauðsyn-
lega, síðan getur komið til greina
tungumálakennsla.
Nú brosa sumir og segja: fyrr mætti
nú vera skólinn, sem ætti að kenna
öll þessi ósköp. Því einu er til að svara,
að enginn skóli kennir nokkra náms-
grein til fulls. Hann kennir undirstöðu-
atriðin, sýnir nemendum verkefnið, að
loknu prófi heldur námið áfram í líf-
inu. Þetta nám er einnig oft skipulagt.
!Menn með samskonar ' áhugamál
mynda málfundafélög eða klúbba. ■—
Það er ánægjulegur félagsskapur og
fróðlegur. Ef hinn fyrirhugaði banka-
mannskóli, sem hér ræðir um, yrði
veruleiki, væri ekkert líklegra, en að
nemendur að loknu prófi stofnuðu slík-
an bankaklúbb, sem auk bankafræði-
legs verðmætis gæti orðið verðugur
milliliður í samstarfi bankanna hér.
Ég lýk nú máli mínu og beini orð-
um mínum til stjórnar S. 1. B., bið
hana hafa það hugfast, að hér er um
að ræða menningarmál, sem þarf
skjótra aðgerða og leyfi mér að gera
þá uppástungu, að stjórnin skipi
framkvæmdarnefnd, sem strax taki til
starfa.
Geir Borg.
1. jan. n. k. breytir Skandinaviska
Kreditaktiebolaget um nafn og heitir
frá þeim tíma Skandinaviska Banken
A/B.