Bankablaðið - 01.12.1938, Síða 20
92
BANKABLAÐID
ir, Hjálmar Bjarnason, Magnús Þor-
steinsson, Gunnl. G. Björnson og Elí- Porri
as Halldórsson.
Endurskoðendur voru endurkjörn-
ir: Ásgeir Bjarnason og Sigurður
Bjarklind.
Að kosningum loknum kvaddi
Sveinn Þórðarson sér hljóðs. Hann
ræddi nauðsyn þess, að komið væri á
fót bankamannaskóla til þess að gefa
efnilegum en efnalitlum nýliðum í
bönkunum kost á að afla sér, á ódýr-
an hátt staðgóðrar fræðslu um starf-
semi í bönkum, og annarar alhliða
þekkingar í erlendum málum og
þessháttar. Vísaði Sveinn í ræðu
sinni í grein, er hann ritaði um mál
þetta í síðasta Bankablað, og er
það fyrsta hugmyndin, er komið hef-
ir fram um bankamannaskóla.
Um þetta mál urðu nokkrar um-
ræður og tóku til máls auk frummæl-
anda, Gunnl. G. Björnson og Þorgils
Ingvarsson.
I lok umræðna flutti Sveinn Þórð-
arson svohljóðandi tillögu, er fund-
urinn samþykkti einróma:
,,Undirritaður gerir það að tillögu
sinni, að S.Í.B. gangist fyrir athug-
un möguleika fyrir námskeiði eða
vísi að bankamannaskóla, þar sem
nýsveinum eða öðrum, sem í bönkum
starfa verði gefinn kostur á menntun,
sem sé sniðin mest eftir þörfum bank-
anna“.
Fleira var eigi tekið fyrir og fundi
slitið.
Samhristingur
Glxtrar full í glösum.
Glóir rós á vanga.
Veltur gull úr vösum,
víxlar ennþá ganga.
Sindrar afl í sölum:
söngur loftið fyllir.
Dansið fljóð úr dölum,
drengur hörpu stillir.
Skiptir margur skynjan,
skjálfa rauðir hólar.
Brestur máske brynjan ;
brunahaninn gólar.
Innra œða eldar,
ógna börnum foldar;
feysknar stoðir feldar
fúna í skauti moldar.
Alfar skrafi unna
óðar lögum breyta.
Tölur aðrir tvinna
tap og rekstur skeyta.
Bretinn yglir brúnir,
brosir höfuðborgin;
ráðum aldrei rúnir,
— Reykja vatn í torgin!
Enn þá opnast armar.
Isak vaxtar sjóðinn.
I.andið girnast garrnar,
gœfidaus er þjóðin:
Ánauð illa undu
ýtar fyrri tíða,
okrið fjölþœtt fundu,
fálust maðkar víða.