Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 23

Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 23
BANKABLAÐIÐ 95 ur hjá þeim. Á aðfangadagskvöldið opinberuðu þau trúlofun sína. En síðari hluta vetrarins komst hann að því, að hættulegur keppi- nautur var kominn til sögunnar. Sig- mar hét hann og var Tómasson, ■— gleðimaður mikill og hrókur alls fagn- aðar. Ekki gat hann þó í fyrstu hugsað sér að Álfheiði stafaði nein hætta af Sigmari. En þegar hann varð þess var, að ýmsar sögur voru á sveimi, um hana og Sigmar, þá fóru efasemdir að vakna. En það var svo um sögurnar, eins og oft vill verða, að enginn vissi hvaðan þær komu eða hvert þær fóru. En þær smugu um sál hans eins og eit- ur. En samfara því var tortryggni og afbrýðissemi. Það mátti segja svo, að illur andi væri kominn inn í ástalíf þeirra. Og Sigmar gerði allt, sem.hann gat til þess að magna þann anda. Að endingu kom svo lokaþáttur æfinýris- ins. — Álfheiður tók á móti honum hæglát og hljóð, en nokkuð alvarleg. Sjálfur var hann í uppnámi og viti sínu fjær vegna nýrrar sögu, sem hann hafði heyrt. — Sögunni hafði hann dembt yfir Álfheiði með ómild- um aðdróttunum, um leið og hann dró trúlofunarhringinn af hönd sér og kastaði honum fyrir fætur hennar. — Hann minntist þess enn, hvernig hún tók ásökunum hans og framkomu allri. — Einbeitt og þögul stóð hún frammi fyrir honum og mætti augna- ráði hans, án þess að mæla orð, eða bera hönd fyrir höfuð sér. Þannig var hún þegar hann yfirgaf hana. Þannig hafði hún verið honum minnisstæðust öll þessi ár, sem liðin voru síðan. — Skömmu síðar fór hann vestur um haf. En ekki var honum um það hugað, að minnast veru sinnar þar, að þessu sinni. Þess minntist hann þó, að fyrir nokkrum mánuðum síðan hafði fund- um þeirra, hans og Sigmars, borið saman vestur í Winnipeg. En þar gerði Sigmar þá játningu, í ölæði og örvæntingu, að allar sögur, um Álf- heiði og sig, hefðu verið tilhæfulaus uppspuni frá byrjun til enda. Þá fyrst varð honum Ijóst hver kona Álfheið- ur var, og hve hann sjálfur hafði ver- ið smár í samanburði við hana. Þeg- ar honum varð þetta ljósi, bjó hann sig til heimferðar. Og nú var hann kominn heim. Það var aðfangadagur jóla, og hann hafði stigið fótum sín- um á sama gólfið og hún hafði gengið um. Hann athugaði á ný þá, sem komu og fóru. Þráin, sem hafði knúið hann heim til íslands, braust fram í huga hans með meiri krafti en nokkru sinni áður. Hann þráði nú það eitt, að bæta fyrir það l'anglæti, sem hann hafði sýnt Álfheiði. Og hann óskaði þess innilega að það gæti orðið. Hann ein- beitti öllum krafti huga síns að því marki. — Hann sá hana í anda fyrir framan sig og umvafði hana öllum þeim kærleikskrafti, sem hugur hans og hjarta átti til. Þannig stóð hann langa stund ótruflaður, án þess að vita hvað gerðist í kringum hann. En svo gerðist undarlegur atburður. Hann sá Álfheiði koma í Ijós frammi í salnum. Hún færðist nær, hægt og hikandi inn gólfið. — Undrun hans var mikil, en það var ekki um að villast. Tækifærið var komið, og hann gekk hikiaust og ákveðinn til móts við hana. — Komdu sæl Álfheiður — mælti hann og rétti henni hönd sína. — Hún tók kveðju hans eins og í íeiðslu. — Viltu leyfa mér að segja við þig fáein orð? —
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.