Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 25

Bankablaðið - 01.12.1938, Blaðsíða 25
BANKABLAÐIÐ 97 Gjaldmiðill Á landnáms- og söguöldinni var notaður gjaldmiðill og verðmælir með ýmsum hætti, en ekki peningar eins og nú. Fyrst á landnámsöldinni var sjálf- sagt lítið um verzlun og viðskipti, hér á landi. En brátt varð þess þörf, að settar yrðu reglur, til þess að greiða fyrir viðskiptum manna. Aðal- gjaldmiðillinn var vaðmálið. Silfur og gull var einnig notað. En sá galli var á því, að varla var til mótuð mynt, og varð því að vega málminn í hvert skipti og gariga úr skugga um það, hversu hreinn hann væri, eða bland- aður öðrum ódýrari máhnum. Verðið fór auðvitað eftir gæðum. Með landnámsmönnum barst hing- að mikið af gulli og silfri. Margir þeirra voru ríkir höfðingjar og þeir fluttu með sér eignir sínar í gulli og silfri. Aðrir voru víkingar. Þeir komu með mikið af dýrum málmum, sem þeir höfðu rænt. Til dæmis mætti nefna silfurkistur Egils Skallagríms- sonar. Á þessum tímum hlýtur vöruverð hér að hafa verið mjög hátt, því lítið var um framleiðslu, en silfur nóg. Síðan hefir silfur og gullforði land- námsmanna smátt og smátt gengið til þurðar, en verðmæti þess miðað við aðrar vörur hækkað. Gull og silf- ur var mest notað til skrauts, en það sem var notað til greiðslu, var haft í bútum og baugum, og getum við nú séð hvernig þeir voru, á Forngripa- safninu í Reykjavík. Þegar viðskipti fóru fram, voru vörurnar venjulega metnar til vað- málsverðs. Lægsta einingin í Vað- málareikningi var alinin. Ein alin til forna var talin 48.909 cm. 6 álnir voru í eyri, 48 álnir í mörk vaðmála, en 2^/2 mörk eða 120 álnir í hundr- aðinu, og það var hæsta verðeiningin. Gæði vaðmálsins áttu að vera þannig, að það var hvítt á lit, tvíbreitt og þrískept og eigi jarðarflárra en svo, að muni alin í 20 álnum, enda mátti mæla hvort heldur að hrygg eða jaðri. Þetta vaðmál var nefnt söluvoð eða vöruvoð. Mynt var fyrst slegin á Norður- löndum, um árið 1000. í gömlum rit- um er getið um peninga silfurs og voru 10 peningar = alin vaðmála, að verðmæti. Myntslátta var þá svo ó- fullkomin, að jafnvel mótuð mynt var vegin, þegar greiðslur fóru fram. Langt um algengara var ómótað silf- ur. Silfrið vegið var talið í örtugum silfurs, aurum, mörkum og hundruð- um. Örtugur var sennilega 9 grömm að þyngd. 3 örtugir voru í 1 eyri, 8 aurar í mörk og 2^4 mörk í hundrað- inu. Silfrið var ýmist ,,brennt“ eða „bleikt“ silfur. Bleikt silfur átti að vera meiri hluti silfurs og halda skor, þ. e. vera jafngott utan og innan. Verðhlutfall þess miðað við vaðmál var 1:4, þ. e. 1 eyrir silfurs jafngilti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.