Bankablaðið - 01.12.1938, Page 26
98
BANKABLAÐIÐ
4 aurum vaðmála. Brennt silfur var
algengt um seinni hluta lýðveldis-
tímabilsins og var verðmæti þess um
1100 1:8 miðað við vaðmál. Verð-
hlutfall gulls og vaðmála var um ár-
ið 1200 1:60.
Kúgildi var stundum miðað við,
og þá einkum er búfé var virt. Kýrin,
sem miðað var við, átti að vera 3—
10 vetra gömul, lastalaus og eigi
verri en meðalkýr. Kúgildi var venju-
lega talið 120 álnir (hundrað vað-
mála).
f fljótu bragði virðist þetta fyrir-
komulag mjög óhentugt og flókið.
En það hafði ýmsa kosti, og það var
nógu gott til þess að fullnægja við-
skiptalífi þeirra tíma. Vaðmálið var
aðal útflutningsvara þjóðarinjiar,
geymdist vel og hélt verðmæti sínu
miðað við aðrar vörur, og því sér-
staklega hentugt sem gjaldeyrir og
verðmælir.
Verksmiðjuiðnaður þekktist ekki.
Vefnaður var eingöngu heimilisiðnað-
ur. Það var því ekki hætt við að fram-
leiðslan yrði of mikil, og að verð
vaðmáls breyttist verulega.
Þegar kaup fóru fram, voru venju-
lega höfð vöruskipti. Það, sem selja
átti, var metið til vaðmálsverðs.
Greiðslan fór einnig fram í vörum,
sem metnar voru á sama hátt, og
þurfti því 'ekki að vera vöruvoð,
heldur hvað annað, sem kaupandi og
seljandi gátu komið sér saman um.
Sveinn Kaaber.
AUGLÝSENDUR!
Auk bankamanna les f jöldi kaupsýslu-
manna Bankablaðið að staðaldri.
Það er því margfaldur hagur að aug-
lýsa í Bankablaðinu.
Norskir bankar
Árið 1937 var hagstætt ár fyrir
norsku bankana. Starfsemi privatbank-
anna færðist mjög í vöxt. Netto-hagn-
aður þeirra varð 21.5 milj. krónur, ár-
ið áður 16.7 milj. krónur, og 1935 13.1
milj. krónur. Hlutafjáraukning varð á
árinu 2 milj. króna, úr 175 milj. í 177
milj. króna. Varasjóðir fóru hækk-
andi úr 62 milj. í 65 milj. króna.
Innlánsfé hækkaði frá árinu áður
úr 840 milj. í 939 milj. króna. Um-
setning bankanna í árslok var 1709
milj. króna. Af umsetningu bankanna
er innlánsfé almennings 942 milj.
króna, hlutafé og varasjóður bank-
anna 245 milj. króna, aðrar eignir 522
milj. króna.
Starfsemi þessa fjár var þannig fyr-
irkomið, að lánað var til iðju og iðn-
aðar 370 milj. krónur, verzlunar 305
milj. krónur, landbúnaðar, skógar-
höggs og fiskveiða 95 milj. króna,
siglinga 70 milj. króna, bygginga 97
milj. króna, annarar starfrækslu 184
milj. króna. Verðbréf, inneignir og
sjóðir bankanna voru 413 milj. króna
aðrar eignir 145 milj. króna.
f Belgíu lækkuðu forvextir í síðasta
mánuði úr 3% í 2V^% P-A. 10. maí
síðastliðinn hækkuðu vextir úr 2% í
4%, en lækkuðu aftur í lok mánað-
arins 13%.
Frá áramótum til 30. september
síðastliðinn hækkuðu innlán í bönkun-
um í New York úr 9.834 milj. dollars
í 10.330 milj. dollara.