Bankablaðið - 01.12.1938, Page 41

Bankablaðið - 01.12.1938, Page 41
BANKABLAÐIÐ 113 gefnu tilefni orð falla í þá átt, að skápurinn væri góður, en nokkuð lít- ill. Eggert Claessen tók þann, sem tal- aði, samstundis á orðinu, og kvaðst gjarnan vilja skipta, og var skápurinn s’íðan fluttur í hans herbergi, en hann lét í staðinn lítið eitt stærri skáp, sem verið hafði í þjónustu bankastjóranna lengur en elztu starfsmenn muna. •— Báðum skápunum fylgdu tvær lykla- samstæður. Hinn 21. maí 1929 stofnar Eggert Claessen nýja Oddfellow stúku, en það er aðeins í frásögur færandi vegna þess að nokkru þar á eftir kemst bankastjórinn á þá skoðun, að hann þurfi mikið stærri skáp, og læt- ur nú bankann kaupa handa sér stór- an og dýran peningaskáp. En þessi ráðstöfun kom sér vel fyrir Eggert Claessen stjórnanda stúkunnar Berg- þóra, því hann fékk ,,Milners“ skáp- inn afhentan og þótt hann hafi senni- lega fengið alla lyklana hjá nafna sín- um, lætur hann smíða nokkra lykla til viðbótar og afhendir þá meðstjórn- endum sínum í st. Bergþóra. Það er athyglisvert í þessu sam- bandi, að þegar skápurinn var látinn úr bankanum ,,um stundarsakir“, var ekki hægt að ákveða hve lengi stúkan mundi þurfa skápsins við, vegna þess að það var ekki fyrr en í árslok árið 1930, að fyrir lá uppkast að samn- ingum um húsbyggingamál Oddfell- owa. Enda varð reyndin sú, að það var komið fast að árslokum 1932, áður en tiltækilegt þótti að láta stúkurnar fá til afnota hólfin, sem innréttuð voru í hinu nýja húsi í þessu skyni. Til skilningsauka á málavöxtum má benda á, að handhafi skápsins hefir hvorki greitt andvirði hans né skilað honum, þegar ég fékk framsalið hinn 3. febrúar 1934. Og það er ef til vill Eggert Claessen einn, sem getur svar- að því, hvort skápurinn var upphaf- lega lánaður í nafni íslandsbanka. En það skoðaði ég vera algert aukaatriði; hitt væri aðalatriði að notkun skáps- ins var — mér vitanlega— slíkt af- brigði, að hann gat ekki talist jafn ör- ugg verðmætageymsla eftir sem áður, á ég þá fyrst og fremst við lyklasmíð- ina, sem ég gat um áðan. Þá verður einnig að hafa í huga að fjöldi manna hefir haft þessa lykla að skápnum. Og ef maður tekur stefndan trúanlegan hafa þeir allir vitað að Islandsbanki átti skápinn! Hvílíkar málsbætur fyr- ir mann, sem vildi afhenda bankanum skápinn aftur og sanna að liann væri jafn góður(!) Til þess að skýra betur það örygg- isleysi, sem æfinlega hlýtur að loða við slíka geymslu, vil ég vekja athygli á því, að ef þessum skáp hefði verið skilað í Útvegsbankann t. d. 1930, stóð svo á að hann hefði vafalaust verið fenginn til notkunar manni þeim, sem starfaði að ógildingu bankaseðla. En við talningu endurskoðenda hjá manni þessum kom í ljós, að stóra upphæð vantaði á að sjóðurinn væri eins og vera bar. Nú vekur það sér- staka athygli, að þessi maður gengdi um sama leyti ritarastörfum í stúku Eggert Claessens, og þekkti þar af leiðandi allar ástæður. — Ég tel það alveg vafalaust, að maðurinn hefði verið svo gáfaður, að halda áfram að neita því, að vita nokkuð um hvarf peninganna, ef hann hefði verið svo heppinn að geta bent á það, að ef til vill væru til fleiri lyklar að skápnum, en þeir, sem hann fékk afhenta. Af

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.